Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   fim 02. maí 2024 19:41
Brynjar Ingi Erluson
Messi leikmaður mánaðarins í MLS-deildinni
Mynd: EPA
Lionel Messi, leikmaður Inter Miami í Bandaríkjunum, er leikmaður mánaðarins í MLS-deildinni fyrir aprílmánuð.

Argentínumaðurinn hefur verið sjóðandi heitur með Inter Miami í byrjun tímabils og alls komið að þrettán mörkum frá því tímabilið hófst í lok febrúar.

Níu af þessum mörkum kom hann að í apríl en hann skoraði sex og lagði upp þrjú.

MLS-deildin hefur valið hann leikmann mánaðarins og óhætt að segja að það hafi verið vel verðskuldað.

Inter Miami er á toppnum í Austur-deild MLS-deildarinnar með 21 stig eftir ellefu leiki.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner