Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
   fim 02. maí 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Newcastle hefur mikinn áhuga á Adarabioyo
Mynd: Getty Images
Newcastle United hefur gríðarlega mikinn áhuga á að landa Tosin Adarabioyo, miðverði Fulham, í sumar. Sky greinir frá.

Adarabioyo er 26 ára gamall Englendingur en hann hefur leikið með Fulham síðustu fjögur ár.

Samningur hans rennur út eftir tímabilið og hefur hann tjáð Fulham að þetta verði hans síðasta tímabil í treyju félagsins.

Sky greinir frá því að Newcastle United sé afar áhugasamt um að landa Adarabioyo, en enska félagið mun fá samkeppni frá ítalska félaginu AC Milan.

Þá kemur fram að tvö önnur félög í ensku úrvalsdeildinni verði með í baráttunni en þau eru ekki nafngreind.

Adarabioyo er uppalinn hjá Manchester City og á 14 landsleiki fyrir yngri landslið Englands.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner