Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 17:50
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Dúndurbyrjun hjá Haukum - KFA og Ægir unnu góða sigra
Frosti Brynjólfsson skoraði í 4-0 sigri Hauka
Frosti Brynjólfsson skoraði í 4-0 sigri Hauka
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Ágúst Karel skoraði tvö fyrir Ægi
Ágúst Karel skoraði tvö fyrir Ægi
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Í dag hófst 1. umferð í 2. deild karla. Haukar, KFA, Ægir og Selfoss byrja öll á sigri.

Gonzalo Zamorano skoraði eina mark Selfoss sem vann Kormák/Hvöt, 1-0, á JÁVERK-vellinum.

Markið kom tuttugu mínútum fyrir leikslok. Hann tók góðan snúning á varnarmann gestanna áður en hann setti boltann í netið.

Haukar unnu sannfærandi 4-0 sigur á Hetti/Hugin á BIRTU-vellinum.

Heimamenn leiddu með þremur í hálfleik en þeir Frosti Brynjólfsson, Djordje Biberdzic og Ernest Slupski gerðu mörkin áður en Þorkell Víkingsson rak síðasta naglann í kistu gestanna.

Marteinn Már Sverrisson og Abdelhadi Khalok El Bouzarrari skoruðu mörk KFA í 2-0 sigri liðsins á Þrótti V. og þá unnu Ægismenn 3-0 sigur á Reyni Sandgerði.

Ágúst Karel Magnússon skoraði tvö og Aron Fannar Hreinsson eitt, en tveir fengu rautt hjá Reyni. Keston George sá rauða spjaldið á 32. mínútu og þá fékk Benedikt Jónsson, liðsstjóri liðsins, að líta rauða spjaldið undir lok leiks.

Úrslit og markaskorarar:

Selfoss 1 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Gonzalo Zamorano Leon ('69 )
Lestu um leikinn

KFA 2 - 0 Þróttur V.
1-0 Marteinn Már Sverrisson ('32 )
2-0 Abdelhadi Khalok El Bouzarrari ('90 )

Haukar 4 - 0 Höttur/Huginn
1-0 Frosti Brynjólfsson ('8 )
2-0 Djordje Biberdzic ('39 )
3-0 Ernest Slupski ('42 )
4-0 Þorkell Víkingsson ('90 )

Reynir S. 0 - 3 Ægir
0-1 Ágúst Karel Magnússon ('53 )
0-2 Ágúst Karel Magnússon ('66 )
0-3 Aron Fannar Hreinsson ('91 )
Rautt spjald: ,Keston George, Reynir S. ('58)Benedikt Jónsson , Reynir S. ('90)
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Ægir 3 2 1 0 7 - 2 +5 7
2.    Haukar 3 2 1 0 6 - 1 +5 7
3.    Selfoss 2 2 0 0 2 - 0 +2 6
4.    Víkingur Ó. 2 1 1 0 5 - 2 +3 4
5.    KFA 2 1 1 0 4 - 2 +2 4
6.    KFG 2 1 0 1 2 - 1 +1 3
7.    Kormákur/Hvöt 3 1 0 2 4 - 4 0 3
8.    Reynir S. 2 1 0 1 3 - 4 -1 3
9.    Þróttur V. 2 0 1 1 1 - 3 -2 1
10.    Höttur/Huginn 2 0 1 1 1 - 5 -4 1
11.    Völsungur 2 0 0 2 0 - 4 -4 0
12.    KF 3 0 0 3 1 - 8 -7 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner