Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   lau 04. maí 2024 11:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Partey: Þetta hefur ekki verið auðvelt
Mynd: Getty Images

Thomas Partey miðjumaður Arsenal hefur verið að berjast mikið við meiðsli á þessari leiktíð en er kominn á fullt.


Hann spilaði allan leikinn gegn Tottenham í vikunni. Hann er í byrjunarliðinu sem mætir Bournemouth í dag.

„Ég er mjög ánægður að vera kominn aftur. Þetta hefur ekki verið auðvelt en með hjálp stjórans og starfsfólksins er ég ánægður með að vera kominn til baka," sagði Partey í viðtali við TNT Sports.

„Við verðum að mæta til leiks frá fyrstu mínútu og gefa allt í þetta. Við vitum hversu mikilvægur þessi leikur er og við verðum að reyna vinna."


Athugasemdir
banner
banner
banner