Í dag er að komið að Pétri Theodóri Árnasyni leikmanni Gróttu að sýna á sér hina hliðina.
Pétur hefur leikið með Gróttu frá árinu 2011 auk þessm sem hann hefur leikið með Kríu í 4. deildinni inni á milli.
Pétur hefur leikið með Gróttu frá árinu 2011 auk þessm sem hann hefur leikið með Kríu í 4. deildinni inni á milli.
Fullt nafn: Pétur Theodór Árnason
Gælunafn: Sigurvin og Halldór Kristján kalla mig Pésa Tedda þessa dagana, það er að slá í gegn.
Aldur:24 ára ´95
Hjúskaparstaða:Í sambandi
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: Minnir að það hafi verið 2011 á móti ÍA í 1. deild.
Uppáhalds drykkur: Ölgerðin hefði náttúrulega átt að kaupa nafnaréttinn af 1.deildinni og skýra hana Pepsi Max deildina. Pepsi deildin og svo Pepsi Max deildin. Er mikill Pepsi Max maður.
Uppáhalds matsölustaður: Hef verið duglegur að styrkja Lamb Street Food út á Granda, er ennþá að bíða eftir afsláttarkorti frá þeim.
Hvernig bíl áttu: Á engan bíl. Fáum ekki krónu hérna.
Það er bara svoleiðis
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Flest allt sem kemur á Netflix, annars er Game of Thrones þættirnir
“good shit” eins og Júlí Karls segir alltaf við mig.
Uppáhalds tónlistarmaður: Ingó veðurguð tróð upp á Vivaldivellinum á lokahófinu síðasta sumar, djöfull var hann góður.
Uppáhalds samskiptamiðill: Er mikið á Snapchat, Instagram og Facebook.
Fyndnasti Íslendingurinn: Hef mjög gaman af Hjörvari Hafliða, hann ætti alltaf að vera í Fm95Blö. En í klefanum þá hlæ ég mest af Arnari Þór.
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Misjafnt, fæ mér líklega oftast jarðaber, daim og þrist eins þreytt og það er.
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: “gaur, þetta var alltof good shit kvöld”
Júlí Karls
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Myndi líklega ekki nenna að keyra alltaf uppí Mosó í umferðinni þó svo ég og Alli Richter séum miklir mátar.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Ég og Grétar Sigfinnur höfum tekið ófáar Crossfit æfingarnar saman út á CFGranda. Maðurinn er í geggjuðu standi. Held alveg pottþétt að ég hafi náð að keppa einu sinni á móti honum í Þrótti 2017.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Óskar Hrafn Þorvaldsson
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Muhammad markmaður Vestra talar ekkert eðlilega mikið. Annars toppmaður.
Sætasti sigurinn: Svona fyrsti sigurinn sem mér datt í hug er Foursome golfsigurinn okkar Kristó Orra á móti Bjarna og Arnari Þór síðasta mánudag. Vorum alltof góðir. Svo er alltaf gaman að vinna Gussa og Gabba á æfingum, þeir eru svo tapsárir báðir tveir.
Mestu vonbrigðin: Það var frekar þreytt þegar ég sleit krossband í annað skipti á sama fæti .Þetta var fyrsti leikurinn minn eftir aðgerð, ég átti að koma inná í einhverjar 20 min í lokin. Var held ég búinn að vera inná í 3 mín þegar ég sneri hnéð í fyrstu stefnubreytingunni. Mikil vonbrigði.
Uppáhalds lið í enska: Manchester United eða stærsta félag í heimi eins og Venni er duglegur að segja.
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Væri til í Jóa Hilmars úr Kríu. Hraði og gæði, svo er hann einn sá besti í klefanum.
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ: Hvernig sem það verður gert þá væri ég til í að lengja mótið aðeins. Þetta undirbúningstímabil er bara alltof langt og þreytt. Annars bara spjalla við Sigga Helga og rifja upp gamlar stundir.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Hákon Rafn Valdimarsson og Orri Steinn Óskarsson
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Kristófer Orri Pétursson
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Það er spurning
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Þetta er svo þreytt spurning annars er ég mikill Ronaldo maður.
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Óliver Thorlacius og Gunnar Jónas eru rosalegir.
Uppáhalds staður á Íslandi: Get ekki beðið eftir að fara til Ólafsvíkur 5. maí. Fallegt vallarstæði.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Gerði skalla þrennu í vetur, helvíti skemmtilegt.
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: Bursta tennurnar, var alltaf að minna Dóra á að bursta úti á Montecastillo.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Erum nokkrir dottnir á kaf í Formúluna. Dóri er mikill Haas maður en það er bara eins og það er. Annars fylgist ég vel með Crossfit, handbolta, golfi og elti Lebron hvert sem hann fer.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Er í rauðum Nike eins og er. Þeir eru good shit
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Fann mig aldrei í saumum. Var einfaldlega bara lélegur.
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: Tell me, This is my life og Hatrið mun sigra er vinsælt í klefanum.
Vandræðalegasta augnablik: Pass
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Van Dijk, Mane og Salah og halda þeim á eyjunni út tímabilið.
Myndi svo nýta tímann og reyna plata Van Dijk á Old Trafford.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Þrátt fyrir nokkrar pásur inn á milli, 2 slitin krossbönd, þá komst ég að því í pub quizi í vikunni að ég er leikjahæsti leikmaður Gróttu af núverandi leikmannahóp. Skemmtilegt. Svo er ég með 1500 dubs í Fortnite.
Athugasemdir