Dalvíkingar heimsóttu Njarðvík þegar 2.umferð Lengjudeildar karla hófst í dag. Dalvíkingar höfðu komið á óvart í fyrstu umferð þegar þeir sigruðu ÍBV og vonuðust til að geta byggt ofan á þau úrslit í dag.
Lestu um leikinn: Njarðvík 3 - 0 Dalvík/Reynir
„Fyrsta tilfiningin er bara að Njarðvíkingar voru betri í dag." Sagði Dragan Stojanovic þjálfari Dalvík/Reynis eftir tapið í dag.
„Njarðvíkingar voru betra liðið en samt í stöðunni 1-0 fyrir Njarðvík fáum við hornspyrnu og skalla eða skot í slá. Þetta gat verið 1-1 en í staðin fara þeir upp í sókn og fá víti 2-0 og svo þriðja markið það er svolítið barnalegt. Við eigum ekki að fá á okkur svona mark en svona er fótboltinn."
Njarðvíkingar höfðu betur með þremur mörkum gegn engu og var Dragan á því að þetta væru kannski svolítið stór úrslit miðað við gang leiksins.
„Já mér finnst þetta svolítið stór úrslit. Alveg sama þó Njarðvík voru betra liðið í dag en þá voru þetta stór úrslit. Við hefðum getað fengið kannski eitt stig úr þessum leik."
Þrátt fyrir tapið sá Dragan margt jákvætt úr þessum leik.
„Það er margt jákvætt í þessum leik. Það sem við þurfum að gera betur er að sækja betur og sækja meira. Við vörðumst vel og þegar þú ert búin að verjast þá áttu eftir að sækja. Ekki verjast í 90 mínútur, það var ekki planið að verjast allan tímann. Planið var að verjast og svo sækja hratt. Transition eins og við vorum góðir í á móti ÍBV en við náðum því ekki í dag. Okkur vantar svolítið oft í þessum leikjum þessa úrslitasendingu til að setja framherjan einn á móti marki og klára."
Nánar er rætt við Dragan Stojanovic þjálfara Dalvík/Reynir hér í spilaranum fyrir ofan.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Njarðvík | 3 | 3 | 0 | 0 | 6 - 1 | +5 | 9 |
2. Fjölnir | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 - 2 | +2 | 7 |
3. Þór | 2 | 1 | 1 | 0 | 5 - 3 | +2 | 4 |
4. Grótta | 2 | 1 | 1 | 0 | 2 - 1 | +1 | 4 |
5. ÍR | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 - 3 | 0 | 4 |
6. Dalvík/Reynir | 3 | 1 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 4 |
7. ÍBV | 2 | 1 | 0 | 1 | 5 - 5 | 0 | 3 |
8. Leiknir R. | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 - 3 | -1 | 3 |
9. Grindavík | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
10. Afturelding | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 5 | -2 | 1 |
11. Þróttur R. | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
12. Keflavík | 2 | 0 | 0 | 2 | 1 - 3 | -2 | 0 |