Ayoub El Kaabi, sóknarmaður Olympiakos, var besti maður vallarins er liðið komst í úrslit í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins með því að vinna Aston Villa samanlagt, 6-2, í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.
El Kaabi var langbesti leikmaður gríska liðsins í einvíginu en hann skoraði alls fimm mörk í leikjunum tveimur.
Hann fær 9 frá Sky Sports en Victor Iborra, Kostas Tzolakis og Quini fá 8.
John McGinn, fyrirliði Villa, var besti maður liðsins með 7, en restin af liðinu fékk 6.
OIympiakos: Tzolakis (8), Rodinei (7), Retsos (7), Carmo (7), Quini (8), Iborra (8), Hezze (7), Fortounis (7), Chiquinho (7), Podence (7), El Kaabi (9).
Varamenn: Masouras (6), Horta (6), Apostolopoulos (6)
Aston Villa: Martinez (6), Konsa (6), Carlos (6), Torres (6), Cash (6), McGinn (7), Luiz (6), Digne (6), Bailey (6), Watkins (6), Diaby (6).
Varamenn: Duran (6), Iroegbunam (6).
Athugasemdir