Í kvöld mætast Olympiakos og Aston Villa í síðari leik liðanna í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu en Grikkirnir eru með ágætis forystu eftir fyrri leikinn.
Olympiakos vann gríðarlega óvæntan 4-2 sigur á Villa Park og kom sér í frábæra stöðu fyrir seinni leikinn í Aþenu.
Það er ekkert grín fyrir lið að mæta til Grikklands og búast við kraftaverk en Villa þarf á einu slíku að halda í kvöld.
Olympiakos á möguleika á því að komast í úrslitaleik í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Villa vann eftirminnilega Evrópubikarinn árið 1982 og Ofurbikarinn sama ár. Það hefur einnig unnið Inter Toto-keppnina tvisvar.
Leikur dagsins:
19:00 Olympiakos - Aston Villa
Athugasemdir