Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   fim 09. maí 2024 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Szczesny orðaður við endurkomu til Arsenal
Mynd: Getty Images

Arsenal er í leit að nýjum markverði til að taka við af Aaron Ramsdale sem hefur misst sætið sitt til David Raya en Ramsdale er líklega á förum í sumar.


Ramsdale hefur aðeins tekið þátt í sex leikjum í úrvalsdeildiinni á þessari leiktíð.

Breski miðillinn The Standard greinir frá því að Arsenal sé í leið að uppöldum leikmanni en talið er að Wojciech Szczesny markvörður Juventus sé á óskalista enska félagsins.

Þessi 34 ára gamli Pólverji gekk til liðs við Arsenal ungur að árum árið 2006 og var hjá félaginu þar til árið 2017 þegar hann skrifaði undir hjá Juventus.

The Mirror greinir frá því að Jason Steele markvörður Brighton sé þá einnig undir smásjá Arsenal.


Athugasemdir
banner
banner
banner