Franski landsliðsmarkvörðurinn Steve Mandanda er á förum frá Marseille í sumar en hann gaf það sterklega í skyn eftir tap liðsins gegn PSG í bikarúrslitum í gær.
Mandanda fékk á sig fjögur mörk í 4-2 tapi gegn PSG og var ósáttur með að enda ferilinn hjá Marseille á þennan hátt en samningur hans við félagið er á enda runninn.
„Það eru miklar líkur að þetta hafi verið síðasti leikurinn minn hérna. Þess vegna eru vonbrigðin og pirringurinn enn meiri."
„Það er erfitt að tala um þetta kvöld. Ég hef átt frábærar stundir hérna og heilt yfir var tími minn hjá Marseille góður. Ég vil ekki þurfa að muna eftir þessu kvöldi. Ég hefði óskað þess að við hefðum spilað betur," segir Mandanda.
Hann á yfir 300 leiki að baki fyrir Marseille síðan hann gekk í raðir félagsins frá Le Havre árið 2007 og hefur fjórum sinnum verið valinn besti markvörður frönsku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir