Liverpool hefur áhuga á Gordon - Það gæti bundið enda á vonir Arsenal um að fá Isak
   sun 28. apríl 2024 15:30
Aksentije Milisic
Arsenal og Juventus á eftir samherja Hákonar
Mynd: EPA

Stórliðin Arsenal og Juventus hafa áhuga á hinum 26 ára gamla Edon Zhegrova. Leikmaðurinn er samherji Hákonar Arnars Haraldssonar hjá Lille en Zhegrova er vængmaður sem hefur skorað ellefu mörk á þessu tímabili.


Kappinn var orðaður við Arsenal, Napoli og AC Milan síðasta sumar og spurning er hvort að franska liðinu takist að halda honum í sínum herbúðum eftir þetta öfluga tímabil.

Hann er falur á fimmtán milljónir evra en Juventus vill fá hann inn ef ítalinn Federico Chiesa ákveður að yfirgefa félagið. Samningaviðræður milli Chiesa og Juventus hafa gengið illa svo ítalska liðið er byrjað að horfa í kringum sig.

Lille vann góðan sigur á Metz í franska boltanum í dag.


Athugasemdir
banner
banner