Lengjudeild kvenna hefst eftir akkúrat viku og erum við á Fótbolta.net byrjaðir að birta spá þjálfara og fyrirliða. Gróttu er spáð áttunda sæti deildarinnar.
María Lovísa Jónasdóttir spilar mikilvægt hlutverk í liði Gróttu en hún hefur spilað með félaginu allan sinn feril. Í fyrra lék hún 18 leiki í Lengjudeildinni og skoraði í þeim fjögur mörk. María hefur alls spilað 111 KSÍ-leiki fyrir Gróttu og skorað í þeim 37 mörk.
Í dag sýnir María Lovísa á sér hina hliðina.
María Lovísa Jónasdóttir spilar mikilvægt hlutverk í liði Gróttu en hún hefur spilað með félaginu allan sinn feril. Í fyrra lék hún 18 leiki í Lengjudeildinni og skoraði í þeim fjögur mörk. María hefur alls spilað 111 KSÍ-leiki fyrir Gróttu og skorað í þeim 37 mörk.
Í dag sýnir María Lovísa á sér hina hliðina.
Fullt nafn: María Lovísa Jónasdóttir
Gælunafn: Örfáir sem kalla mig Mæja
Aldur: Er að verða 21 árs
Hjúskaparstaða: Á lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnistætt úr leiknum: Held að fyrsti leikurinn hafi verið 2018, man því miður ekkert eftir honum
Uppáhalds drykkur: Kaldur nocco á morgnana
Uppáhalds matsölustaður: Erfitt val en verð að segja hraðlestin og sushi social
Hvernig bíl áttu: Ford fiesta
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Gossip girl
Uppáhalds tónlistarmaður: Rihanna er ein af uppáhalds
Uppáhalds hlaðvarp: Blökastið
Uppáhalds samfélagsmiðill: Held ég eyði aðeins of miklum tíma á tiktok stundum
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Líklega vísir eða eitthvað tengt skólanum
Fyndnasti Íslendingurinn: Kóngarnir í Fm95blö geta verið mjög fyndnir
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Varstu búin að senda mér það sem ég á að prenta? - frá mömmu, var að biðja hana um að prenta út fyrir mig
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei segja aldrei
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Margar góðar en Brookelyn í HK er ein af þeim, boltinn er límdur við hana
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Verð að segja Pétur Rögnvaldsson sem þjálfaði mig í svona 8 ár
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Tinna Brá er óþolandi góð í marki
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Messi og Margrét Lára
Sætasti sigurinn: Örugglega að vinna fylki í bikar í fyrra en það að var líka sætt að vinna HK um daginn í vító.
Mestu vonbrigðin: Það voru vonbrigði að falla niður í 2. deild árið 2021
Uppáhalds lið í enska: Newcastle
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Það væri ekki agalegt að fá Amöndu úr Val
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Aufí og Rebekka eiga eftir að ná langt
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Úff, frábær spurning
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Mínar konur í Gróttu
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Ætli það sé ekki Rakel Lóa
Uppáhalds staður á Íslandi: Seltjarnarnesið
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: ????
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: nei
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Fylgist með handbolta og stundum körfubolta
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike mercurial
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Jarðfræði enda er það hundleiðinlegt
Vandræðalegasta augnablik: Einu sinni þegar við skoruðum mark í leik og við þurftum annað mark þannig ég tók boltann til að koma honum fljótt á miðjuna en fór svo bara sjálf á miðjuna og ætlaði að taka hana, fattaði ekkert þegar stelpurnar voru að segja mér að fara frá.
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju og af hverju: Tæki Margréti Rán til að koma okkur heim, Rebekku til að halda uppi stuðinu og Jórunni til að hafa allt under control
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi senda Rakel í Love Island, hún myndi falla vel inn með breska hreiminn sinn
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Hef unnið nokkra íslandsmeistaratitla í handbolta
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Kynntist Margréti Leu þegar hún var hjá okkur í fyrra, einn mesti meistari sem ég hef kynnst og ekkert eðlilega fyndin
Hverju laugstu síðast: Laug að systur minni að ég hefði ekki tekið peysuna hennar
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hlaup og löng upphitun
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja kennarana mína af hverju þeir þurfi að draga niður fyrir að svara vitlaust í krossaspurningum í prófum, vel þreytt dæmi.
Athugasemdir