Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 26. mars 2019 10:02
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið U17 sem er hársbreidd frá EM
Mynd: KSÍ
Í dag er gífurlega mikilvægur dagur fyrir strákana sem skipa U17 ára landslið Íslands. Þeir geta tryggt sér sæti á lokakeppni EM með sigri gegn Hvíta-Rússlandi í dag.

Leikurinn hefst klukkan 11:00 á íslenskum tíma og gæti eitt stig verið nóg til að komast á EM. Ísland er sem stendur með tveggja stiga forystu á Þýskaland og Hvíta-Rússland á toppi riðilsins.

Byrjunarlið Íslands hefur verið staðfest fyrir leikinn mikilvæga og má sjá hér fyrir neðan. Andri Lucas Guðjohnsen er á sínum stað í fremstu víglínu eftir að hafa sett þrennu gegn Þýskalandi í síðasta leik.

Byrjunarlið:
Ólafur Kristófer Helgason (M)
Róbert Orri Þorkelsson
Oliver Stefánsson (F)
Jón Gísli Eyland Gíslason
Valgeir Valgeirsson
Ísak Bergmann Jóhannesson
Andri Lucas Guðjohnsen
Davíð Snær Jóhannsson
Andri Fannar Baldursson
Orri Hrafn Kjartansson
Danijel Dejan Djuric




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner