Besta-deild kvenna - Efri hluti
Kópavogsvöllur
28.09.2024 - 14:00
Aðstæður: Dropar inn á milli en annars ágætt
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Breiðablik
4
2
FH
0-1 Elísa Lana Sigurjónsdóttir '5
Samantha Rose Smith '20 1-1
Andrea Rut Bjarnadóttir '31 2-1
Samantha Rose Smith '33 3-1
3-2 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir '36
Katrín Ásbjörnsdóttir '63 4-2
Liðsuppstilling Liðsuppstilling
Áhorfendur: 507. Betra en seinast.
Maður leiksins: Samantha Rose Smith
Byrjunarlið:
25. Telma Ívarsdóttir (m) 1999
4. Elín Helena Karlsdóttir 24
5. Samantha Rose Smith 2001
7. Agla María Albertsdóttir (f) 27 ('73)
8. Heiða Ragney Viðarsdóttir (f) 1995
10. Katrín Ásbjörnsdóttir 1992 ('81)
11. Andrea Rut Bjarnadóttir 2003
13. Ásta Eir Árnadóttir (f) ('81)
15. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('55)
18. Kristín Dís Árnadóttir 27
27. Barbára Sól Gísladóttir 25
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m) 19
2. Jakobína Hjörvarsdóttir
6. Mikaela Nótt Pétursdóttir 22
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 20 ('73)
17. Karitas Tómasdóttir 31 ('55)
28. Birta Georgsdóttir 2002 ('81)
33. Margrét Lea Gísladóttir ('81)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Bjarki Sigmundsson (Sjúkraþj.) aldur 35
Edda Garðarsdóttir
Sævar Örn Ingólfsson
Hermann Óli Bjarkason
Ólafur Pétursson
Ana Victoria Cate

Gul spjöld:
Agla María Albertsdóttir ('16)
Samantha Rose Smith ('50)

Rauð spjöld:
Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m) 22
2. Birna Kristín Björnsdóttir 22 ('76)
4. Vigdís Edda Friðriksdóttir 26
5. Arna Eiríksdóttir (f) 2002
8. Valgerður Ósk Valsdóttir 2002 ('60)
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir 19 ('82)
14. Snædís María Jörundsdóttir ('60)
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir 2006 ('60)
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir 2005
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir 23
37. Jónína Linnet 19
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
3. Erla Sól Vigfúsdóttir 2003 ('76)
6. Hanna Kallmaier ('60)
7. Thelma Karen Pálmadóttir 2008 ('60)
11. Anna Nurmi
19. Hildur Katrín Snorradóttir 18 ('60)
36. Selma Sól Sigurjónsdóttir ('82)
42. Bryndís Halla Gunnarsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Hlynur Svan Eiríksson (Þ) aldur 57
Guðni Eiríksson (Þ) aldur 47
Dagur Óli Davíðsson (MÞ) aldur 29
Brynjar Sigþórsson (AÞ) aldur 27
Hjörtur Hinriksson (Styrktarþj.) aldur 49
Guðmundur Jón Viggósson
Karen Tinna Demian

Gul spjöld:
Margrét Brynja Kristinsdóttir ('12)

Rauð spjöld:
Hilmar Jökull Stefánsson @Hilmarjokull
Skýrslan: Meistarabragur í Kópavogi
Hvað réði úrslitum?
Fleiri færi nýtt. Hvorugt lið sátt við færanýtingu sína í dag. Stórskemmtilegur fótboltaleikur á að horfa og hefði getað endað með mikið fleiri mörk en raungerðist.
Bestu leikmenn
1. Samantha Rose Smith (Breiðablik)
Óstöðvandi í dag eins og nánast alltaf. Hún er jafnan potturinn og pannan í sóknarleik Breiðabliks og þótt hún hafi verið á miðjunni bróðurpart þessa leiks þá er hún alveg jafn góð þar og á kantinum.
2. Heiða Ragney Viðarsdóttir (Breiðablik)
Umferðarstjórinn á miðjunni. Braut bæði niður sóknir FH og kom samherjum í góðar stöður. Róleg á boltanum og tvíefldist í seinni hálfleik þegar Karítas kom inn á miðjuna með henni.
Atvikið
Þriðja mark Breiðabliks á 33. mínútu leiksins kom eiginlega strax í kjölfarið á öðru markinu. Það breytti svolítið leiknum þar sem FH var yfir 13 mínútum áður. Eftir það þá var ekki nokkur spurning um það hvort liðið myndi sigra enda þær grænklæddu mikið mun sterkari með fleiri góð færi.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar eru ennþá stigi á undan Val í baráttunni um sigur í Bestu deildinni. Valskonur unnu Víking Reykjavík 2-1 og Blikakonum dugir jafntefli á Hlíðarenda næstu helgi. FH eru ennþá á botni efri hlutans með 25 stig en Breiðablik fer upp í 60 stig.
Vondur dagur
Færanýting. Færanýting beggja liða átti vondan dag. Bæði lið óðu í færum í leiknum en undirritaður á eftir að bíða spenntur eftir xG tölfræðinni þegar Besta deildin birtir hana.
Dómarinn - 8
Gunnar og hans fólk með góð tök á leiknum. Kannski 1, 2 rangstöðudómar sem gætu verið rangir en þó ekki þannig að það lækki teymið of mikið niður.