Besta karla - Neðri hluti
Samsungvöllurinn
10.10.2026 - 14:00
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Stjarnan
0
3
KA
0-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson '33 , víti
0-2 Adam Ægir Pálsson '38
Benedikt V. Warén '68
0-3 Valdimar Logi Sævarsson '70
Liðsuppstilling Liðsuppstilling
Áhorfendur: 264
Maður leiksins: Hallgrímur Mar Steingrímsson
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m) 35
3. Gustav Kjeldsen 27
6. Sindri Þór Ingimarsson 27 ('79)
7. Örvar Eggertsson 27 ('79)
11. Birnir Snær Ingason 29 ('58)
14. Bjarki Hauksson 20
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason (f) 22
21. Ibrahim Turay 26 ('57)
22. Emil Atlason (f) 33 ('58)
23. Benedikt V. Warén 25
25. Christian Bjarmi Alexandersson 19
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason 25
8. Jóhann Árni Gunnarsson 25 ('57)
19. Ari Leifsson 28
24. Sigurður Gunnar Jónsson 21 ('79)
28. Bjarki Friðjón Sæmundsson 15
29. Alex Þór Hauksson 26 ('58)
36. Arnar Breki Björnsson 15
94. Árni Vilhjálmsson 32 ('79)
99. Andri Rúnar Bjarnason 35 ('58)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Olgeir Sigurgeirsson (Þ) aldur 44
Hákon Ernir Haraldsson (Þ) aldur 23
Brynjar Kristmundsson (Þ) aldur 34
Brynjar Gauti Guðjónsson (Liðsstj.) aldur 34
Rajko Stanisic (MÞ) aldur 58

Gul spjöld:
Bjarki Hauksson ('83)

Rauð spjöld:
Benedikt V. Warén ('68)
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m) 36
2. Birgir Baldvinsson 25 ('79)
6. André Rømer 33
7. Adam Ægir Pálsson 28 ('65)
8. Jeppe Pedersen 25 ('79)
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson 36 ('83)
21. Mikael Breki Þórðarson 19 ('65)
23. Markús Máni Pétursson 20
28. Hans Viktor Guðmundsson (f) 30
29. Jakob Snær Árnason 29
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson 25
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
99. Jóhann Mikael Ingólfsson (m) 19
14. Danijel Dejan Djuric 23 ('79)
16. Jakob Héðinn Róbertsson 21 ('65)
22. Hrannar Björn Steingrímsson 34 ('79)
25. Bjarki Fannar Helgason 21
32. Sigurður Nói Jóhannsson 16 ('83)
44. Valdimar Logi Sævarsson 20 ('65)
77. Óskar Arnór Morales Einarsson 19
91. Snorri Kristinsson 17
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ) aldur 40
Eiður Smári Guðjohnsen (Þ) aldur 48
Egill Daði Angantýsson (AÞ) aldur 43
Nicklas Cleemann Rulle (MÞ) aldur 27
Hjörvar Sigurgeirsson (Sjúkraþj.) aldur 28

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Kári Snorrason @karisnorra
Skýrslan: Andleysið í Garðabænum algjört
Hvað réði úrslitum?
Andleysið var algjört hjá Stjörnunni. Þrátt fyrir að halda betur í boltann voru Garðbæingar aldrei nálægt því að skapa sér færi. KA-menn unnu mjög svo verðskuldaðan sigur sem var í raun aldrei í hættu.
Bestu leikmenn
1. Hallgrímur Mar Steingrímsson
Hallgrímur heilt yfir frábær, fiskaði vítaspyrnu og skoraði sjálfur úr henni af miklu öryggi.
2. Adam Ægir Pálsson
Skoraði gott mark og vann virkilega vel fyrir liðið í dag. Ég lofaði honum fyrsta sætinu eftir leik en vonandi fyrirgefur Adam mér þetta. Valdimar Logi Sævarsson og Jakob Snær Árnason eiga sömuleiðis lof skilið fyrir frammistöður sínar í dag.
Atvikið
Andleysi Garðbæinga fær þessa nafnbót. Mátti best sjá það á leikmönnum inni á vellinum en jafnframt upp í stúku. Alls mættu 264 stuðningsmenn á völlinn og eflaust helmingur þeirra stuðningsmenn KA. Maður skilur stuðningsmenn Stjörnunnar þó fullkomlega að láta ekki bjóða sér þetta.
Hvað þýða úrslitin?
KA-menn eru tveimur stigum frá fallsæti og eru í harðri baráttu við erkifjendurna í Þór. Stjarnan er í 8. sæti og hefur að engu að keppa.
Vondur dagur
Fremstu fjórir hjá Stjörnunni sáust varla - Örvar, Benedikt, Emil og Birnir. Benedikt Warén hlýtur þó þennan titil þar sem hann lék reka sig af velli, þó svo að það hafi verið harður dómur.
Dómarinn - 5
Helgi flautaði réttilega vítaspyrnu í fyrri hálfleik en rauða spjaldið sem hann gaf Benedikt Warén var rangur dómur. Hefði átt að gefa honum gult og halda áfram með lífið.