Besta karla - Neðri hluti
VÍS völlurinn
10.10.2026 - 14:00
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Þór
1
0
ÍBV
Christian Greko Jakobsen '30 1-0
Liðsuppstilling Liðsuppstilling
Maður leiksins: Ásbjörn Líndal Arnarsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f) 27
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson 18
6. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson 27
8. Einar Freyr Halldórsson 18
15. Kristófer Kristjánsson 22
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson 22 ('75)
18. Sverrir Páll Ingason 17 ('88)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson 26 ('88)
23. Kevin Vazquez Comesaña 33
25. Christian Greko Jakobsen 33 ('81)
31. Þorri Ingólfsson 17 ('81)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m) 35
3. Birgir Ómar Hlynsson 25 ('88)
4. Hermann Helgi Rúnarsson 26
7. Atli Sigurjónsson 35 ('81)
9. Victor Bertomeu 34 ('81)
10. Aron Ingi Magnússon 22
12. Lucas Vieira Thomas 17
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason 29 ('75)
19. Ragnar Óli Ragnarsson 23 ('88)
27. Haraldur Ágúst Brynjarsson 19
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ) aldur 41
Stefán Ingi Jóhannsson (Sjúkraþj.) aldur 32
Eiður Benedikt Eiríksson (AÞ) aldur 34
Arnar Geir Halldórsson (Forráðam.) aldur 34

Gul spjöld:
Einar Freyr Halldórsson ('35)

Rauð spjöld:
Byrjunarlið:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m) 23
2. Sigurður Arnar Magnússon 27
4. Mattias Edeland 27
6. Milan Tomic 26 ('78)
8. Bjarki Björn Gunnarsson 26 ('59)
11. Aron Lucas Vokes 22 ('43)
23. Arnór Ingi Kristinsson 25
25. Alex Freyr Hilmarsson (f) 33
26. Felix Örn Friðriksson 27 ('59)
27. Róbert Elís Hlynsson 19 ('46)
30. Vicente Valor 28
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Ivan Vidrih (m) 21
5. Sturla Sagatun-Kristjánsson 20 ('59)
7. Sesar Örn Harðarson 20 ('43)
9. Liam Daði Jeffs 20
17. Emil Gautason 16
22. Eiður Atli Rúnarsson 24 ('78)
28. Heiðmar Þór Magnússon 18
67. Omar Sowe 25 ('46)
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson 30 ('59)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Aleksandar Linta (Þ) aldur 51
Jakob Fannar Möller (Liðsstj.) aldur 22
Óskar Elías Zoega Óskarsson (AÞ) aldur 30
Filipe Andre Alexandre Machado (MÞ)
Branisalv Bajic (AÞ)
Elías Árni Jónsson (Styrktarþj.) aldur 50
Elías J Friðriksson (Sjúkraþj.) aldur 59

Gul spjöld:
Milan Tomic ('26)
Bjarki Björn Gunnarsson ('41)
Felix Örn Friðriksson ('45)
Sigurður Arnar Magnússon ('48)
Mattias Edeland ('53)
Eiður Atli Rúnarsson ('79)

Rauð spjöld:
Sverrir Örn Einarsson @SEinarsson
Skýrslan: Brand-Ara mark felldi ÍBV
Hvað réði úrslitum?
Eyjamenn voru bara ekki mættir til leiks í fyrri hálfleik. Lið Þórs var ofan á í flestu á vellinum á fyrstu 45 mínútum leiksins og leiddu verðskuldað þótt það hafi tilkomið með skrautlegum hætti. Eyjamenn reyndu hvað þeir gátu að bæta úr slökum fyrri hálfleik með kraftmeiri frammistöðu í þeim síðari en tókst ekki að finna löglegu leiðina í markið og því fór sem fór.
Bestu leikmenn
1. Ásbjörn Líndal Arnarsson
Og Gyrðir Hrafn sömuleiðis. Frábærir varnarlega í dag og átu allt sem nálægt teig Þórs kom. Virkilega sterk frammistaða varnarlega í dag.
2. Ágúst Eðvald Hlynsson
Það eru fáir í deildinni sem hlaupa jafn mikið og hann í hverjum leik. Dugnaður út í gegn og vinnur gríðarvel fyrir liðið, Átti sendinguna sem skapaði markið.
Atvikið
Það getur ekkert annað verið en markið hjá Christian Greko, Fyrirjgöf fyrir markið frá vinstri sem virðist stefna beint í fang Ara í marki ÍBV sem missir boltann beint í Greko sem fær boltann meira í sig en eitthvað annað og þaðan fer boltinn í netið. Rándýrt mark fyrir ÍBV og atvik sen mun sitja í mörgum langt inn í veturinn.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða að ÍBV með 19 stig á botninum á ekki lengur möguleika á að bjarga sér frá falli en sjö stig eru í KA í næsta örugga sæti og tvær umferðir eru eftir. Þór er með 24 stig og mun eiga í harðri baráttu við granna sína í KA um sæti í deildinni að ár.
Vondur dagur
Ari i Haraldstovu Petersen mun ekki sofa vel í nótt. Þessi mistök á þessum tímapunkti sem kosta þetta mikið er súr biti að kyngja. En svona er fótboltinn og lífið sjálft stundum og þá er bara að setja hausinn upp, kassann út og halda áfram.
Dómarinn - 6
Að höfðu samráði við fróðari menn en sjálfan mig hallast ég að því að Vilhjálmur og hans teymi hafi komist að réttri niðurstöðu í umdeildu atviki í fyrri hálfleik þegar Aron Birkir og Aron Vokes lenda í hörðu samstuði á vellinum. Hann komst hins vegar að rangri niðurstöðu þegar Sigurður Arnar Magnússon sveiflaði olnboganum í Christian Greko í síðari hálfleik að mínu mati og hefði með réttu átt að lyfta rauðu spjaldi á Eyjamanninn þá. Annars heilt yfir bara þokkalegt í nokkrum hitaleik.