Besta karla - Efri hluti
Eikarvöllurinn
11.10.2026 - 19:15
Aðstæður: Góður blástur og rigning
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Breiðablik
3
1
Keflavík
Viktor Karl Einarsson '18 1-0
Jónatan Guðni Arnarsson '69 2-0
2-1 Eiður Orri Ragnarsson '76
Höskuldur Gunnlaugsson '91 3-1
Liðsuppstilling Liðsuppstilling
Áhorfendur: 411
Maður leiksins: Höskuldur Gunnlaugsson
Byrjunarlið:
12. Gylfi Berg Snæhólm (m) 18
4. Ásgeir Helgi Orrason 21
5. Ívar Örn Árnason 30 ('83)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f) 32
8. Viktor Karl Einarsson 29 ('90)
9. Óli Valur Ómarsson 23
10. Kristinn Steindórsson 36 ('69)
13. Anton Logi Lúðvíksson 23
14. Hlynur Freyr Karlsson 22
22. Jónatan Guðni Arnarsson 19 ('69)
99. Þorleifur Úlfarsson 25 ('83)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Anton Ari Einarsson (m) 32
16. Dagur Örn Fjeldsted 21 ('83)
18. Davíð Ingvarsson 27 ('69)
21. Viktor Örn Margeirsson 32
24. Bjartur Orri Jónsson 16
29. Gabríel Snær Hallsson 19 ('90)
32. Kristinn Narfi Björgvinsson 18
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson 15 ('83)
77. Birkir Þorsteinsson 17 ('69)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Jón Guðni Fjóluson (Þ) aldur 37
Ólafur Ingi Skúlason (Þ) aldur 43
Brynjar Dagur Sighvatsson (Liðsstj.) aldur 23
Dagur Elís Gíslason (Liðsstj.) aldur 23
Haraldur Björnsson (MÞ) aldur 37
Helgi Jónas Guðfinnsson (Styrktarþj.) aldur 50
Emil Pálsson (AÞ) aldur 33
Særún Jónsdóttir (Sjúkraþj.) aldur 45

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m) 22
3. Axel Ingi Jóhannesson 22
6. Sindri Snær Magnússon (f) 34 ('46)
7. Dagur Ingi Valsson 27
10. Stefan Ljubicic 27
20. Marin Brigic 26
21. Alpha Conteh 26 ('88)
23. Eiður Orri Ragnarsson 22
28. Viktor Árni Traustason 19 ('83)
47. Egill Valur Karlsson 17 ('46)
88. Mate Simicic 21 ('83)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Helgi Bergmann Hermannsson (m) 24
2. Elvis Bwomono 27
4. Nacho Heras 35 ('46)
15. Arnór Atli Aðalbjörnsson 17 ('83)
18. Ernir Bjarnason 29
22. Ásgeir Páll Magnússon 26 ('46)
25. Frans Elvarsson 36
26. Rúnar Leó Hólmarsson 18 ('88)
42. Baldur Logi Brynjarsson 18 ('83)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ) aldur 44
Guðmundur Árni Þórðarson (Forráðam.) aldur 40
Karlo Bacinger (Sjúkraþj.)
Jónas Guðni Sævarsson (Leikgr.) aldur 42
Ómar Jóhannsson (MÞ) aldur 45
Óskar Rúnarsson (Leikgr.) aldur 36
Hólmar Örn Rúnarsson (AÞ) aldur 44

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Kári Snorrason @karisnorra
Skýrslan: Lengjubikarsbragur á Eikarvelli
Hvað réði úrslitum?
Stemningin í kringum leikinn var lítil sem engin, skiljanlega kannski. Bæði lið höfðu að litlu að keppa og svo voru veðurguðirnir alls ekki í stuði. Íslenska haustlægðin spilaði stórt hlutverk í leiknum og fáir áhorfendur í stúkunni. Ákveðin Lengjubikars stemning yfir leiknum. Sterkar vindhviður gerðu leikmönnum beggja liða erfitt fyrir þrátt fyrir að þeir hafi reynt að gera sem best úr hlutunum. Yfir heildina litið voru Blikar ofan á í leiknum og unnu nokkuð sanngjarnan sigur. Ásgeir í marki Keflvíkinga átti stórar vörslur en gestirnir frá Keflavík reyndu lítið á hinn unga Gylfa Berg í marki Blika.
Bestu leikmenn
1. Höskuldur Gunnlaugsson
Höskuldur skoraði og lagði upp og var sterkur í baráttunni. Einn besti leikur hans í sumar. Skoraði sitt 100. mark fyrir Breiðablik í 400. leik sínum fyrir félagið.
2. Eiður Orri Ragnarsson
Eiður var hættulegasti leikmaður Keflavíkur og skoraði laglegt mark. Óheppinn að skora ekki annað mark.
Atvikið
Glæsimark Jónatans Guðna á þessa nafnbót svo sannarlega skilið. Úr efstu hillu.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin sem slík breyta litlu fyrir bæði lið. Stigin þrjú setja Blika þó í betri stöðu upp á að tryggja 4. sætið. Breiðablik er með tveggja stiga forskot á Skagamenn nú þegar tvær umferðir eru eftir. Keflvíkingar eru í 6. sæti, fimm stigum á eftir ÍA.
Vondur dagur
Nacho Heras kom inn á sem varamaður hjá Keflavík og gerðist sekur um slæm mistök er hann þræddi Höskuld Gunnlaugsson, leikmann Breiðablik, einan í gegn sem þakkaði pent fyrir sig og kláraði vel.
Dómarinn - 8
Lítið hægt að setja út á kvartettinn í dag.