Besta karla - Neðri hluti
VÍS völlurinn
17.10.2026 - 14:00
Aðstæður: Skaplegar en nokkur vindur
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
VÍS völlurinn
17.10.2026 - 14:00
Aðstæður: Skaplegar en nokkur vindur
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson

Þór
3
1
Stjarnan

0-1
Örvar Eggertsson
'3
Ásbjörn Líndal Arnarsson
'11
1-1
Sverrir Páll Ingason
'19
2-1
Þorri Ingólfsson
'58
3-1
Maður leiksins: Ásbjörn Líndal Arnarsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f) 27
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson 18
6. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson 27
8. Einar Freyr Halldórsson 18
('88)
('88)
15. Kristófer Kristjánsson 22
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson 22
('79)
('79)
18. Sverrir Páll Ingason 17
22. Ágúst Eðvald Hlynsson 26
23. Kevin Vazquez Comesaña 33
25. Christian Greko Jakobsen 33
31. Þorri Ingólfsson 17
- Meðalaldur 24 ár
Varamenn:
28. Franko Lalic (m) 35
4. Hermann Helgi Rúnarsson 26
5. Yann Emmanuel Affi 30
7. Atli Sigurjónsson 35
10. Aron Ingi Magnússon 22
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason 29
('88)
('88)
19. Ragnar Óli Ragnarsson 23
('79)
('79)
27. Haraldur Ágúst Brynjarsson 19
30. Peter Ingi Helgason 18
- Meðalaldur 26 ár
Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ) aldur 41
Halldór Mar Einarsson (Liðsstj.) aldur 28
Stefán Ingi Jóhannsson (Sjúkraþj.) aldur 32
Eiður Benedikt Eiríksson (AÞ) aldur 34
Arnar Geir Halldórsson (Forráðam.) aldur 34
Gul spjöld:
Kevin Vazquez Comesaña ('33)
Rauð spjöld:Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m) 35
3. Gustav Kjeldsen 27
('62)
('62)
7. Örvar Eggertsson 27
8. Jóhann Árni Gunnarsson 25
('77)
('77)
11. Birnir Snær Ingason 29
14. Bjarki Hauksson 20
('62)
('62)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason (f) 22
19. Ari Leifsson 28
('77)
('77)
22. Emil Atlason (f) 33
('64)
('64)
24. Sigurður Gunnar Jónsson 21
29. Alex Þór Hauksson 26
- Meðalaldur 27 ár
Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason 25
6. Sindri Þór Ingimarsson 27
21. Ibrahim Turay 26
25. Christian Bjarmi Alexandersson 19
('62)
('62)
28. Bjarki Friðjón Sæmundsson 15
('77)
('77)
36. Arnar Breki Björnsson 15
('77)
('77)
37. Benjamín Björnsson 16
94. Árni Vilhjálmsson 32
('64)
('64)
99. Andri Rúnar Bjarnason 35
('62)
- Meðalaldur 23 ár
('62)
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Sigurður Gunnar Jónsson ('10)
Gustav Kjeldsen ('50)
Ari Leifsson ('72)
Arnar Breki Björnsson ('93)
Rauð spjöld:Skýrslan: Örlög Akureyrar í höndum Þórs
|
Hvað réði úrslitum?
Lið heimamanna vildi þetta einfaldlega miklu meira. Þeir hlupu meira, þeir börðust meira og virkuðu einfaldlega miklu klárari í verkefnið sem fyrir höndum var. Á sama tíma einkenndi algjört andleysi lið Stjörnunar og maður fékk það örlítið á tilfinninguna að þeir varla nenntu að vera þarna.
Bestu leikmenn
1. Ásbjörn Líndal Arnarsson
Annan leikinn í röð ætla ég að gefa Ásbirni þetta. Þó ekki væri nema fyrir það að láta bara vaða beint úr aukaspyrnu og koma sínum mönnum aftur inn í leikinn með virkilega snotru marki.
2. Þorri Ingólfsson
Hljóp á við þrjá eins og svo oft áður og var ógnandi fram á við. Kórónaði fínan leik sinn með góðu marki sem innsiglaði sigurinn endanlega.
Atvikið
Ég skrifa það á þriðja mark Þórs. Frábær skyndisókn sem endar með marki frá Þorra Ingólfssyni. Öll taugaspenna fór úr liði Þórs og þeir gátu leyft sér að njóta þeirra mínútna sem eftir lifðu leiks. Að sama skapi hvarf sú litla trú og orka sem eftir var í liði Stjörnunar.
|
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða einfaldlega að örlög Akureyrar eru í höndum Þórs, Þeir lyftu sér upp úr fallsæti og skildu granna sína í KA eftir í súpunni. Staða sem fáir sáu fyrir sér í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.
Vondur dagur
Það er ekki hægt annað en að skrifa þetta á lið Stjörnunar sem heild. Hvort heldur sem er leikmenn eða teymið í kring. Olgeir Sigurgeirsson einn úr þjálfarateymi liðsins hafði á orði að hann hefði séð mikla bætingu á liðinu frá tapinu gegn KA á dögunum. Gott og vel enda sá ég ekki þann leik en mikið andskoti hefur sá leikur verið slakur því þessi leikur var síður en svo góður af hendi Stjörnunar
|