Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
Egilshöll
04.02.2019 - 20:00
Aðstæður: Ekki mikið út á þær að setja
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
KR
3
1
Fylkir
Pablo Punyed '19 1-0
Kennie Chopart '27 2-0
Björgvin Stefánsson '38 , víti 3-0
3-1 Daði Ólafsson '60
Ragnar Bragi Sveinsson '74
Liðsuppstilling Liðsuppstilling
Byrjunarlið:
1. Beitir Ólafsson (m)
6. Gunnar Þór Gunnarsson
7. Tobias Thomsen ('46)
8. Finnur Orri Margeirsson
9. Björgvin Stefánsson
11. Kennie Chopart (f)
14. Ægir Jarl Jónasson
18. Aron Bjarki Jósepsson ('73)
19. Kristinn Jónsson ('15)
22. Ástbjörn Þórðarson 27
23. Atli Sigurjónsson 1991 ('22)
- Meðalaldur 31 ár

Varamenn:
13. Sindri Snær Jensson (m)
8. Stefán Árni Geirsson 25
16. Pablo Punyed ('15)
22. Óskar Örn Hauksson ('22)
24. Örlygur Ómarsson
28. Hjalti Sigurðsson 26 ('73)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Bjarni Eggerts Guðjónsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Jón Hafsteinn Hannesson
Pálmi Rafn Pálmason
Friðgeir Bergsteinsson
Magnús Máni Kjærnested
Valgeir Viðarsson

Gul spjöld:
Kennie Chopart ('69)
Beitir Ólafsson ('75)
Ástbjörn Þórðarson ('79)
Pálmi Rafn Pálmason ('89)

Rauð spjöld:
Byrjunarlið:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
. Daði Ólafsson 32
Emil Ásmundsson 1995 ('57)
2. Ásgeir Eyþórsson (f) 1993
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f) 1994
9. Hákon Ingi Jónsson ('77)
10. Andrés Már Jóhannesson
11. Valdimar Þór Ingimundarson
16. Ólafur Ingi Skúlason
23. Ari Leifsson ('57)
28. Helgi Valur Daníelsson
- Meðalaldur 32 ár

Varamenn:
30. Kristófer Leví Sigtryggsson (m) 26
5. Orri Sveinn Stefánsson
10. Benedikt Daríus Garðarsson 27
13. Arnór Gauti Ragnarsson ('57)
17. Davíð Þór Ásbjörnsson ('57)
21. Daníel Steinar Kjartansson
29. Axel Andri Antonsson ('77)
33. Gylfi Gestsson
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Helgi Sigurðsson (Þ)
Rúnar Pálmarsson (Þ)
Magnús Gísli Guðfinnsson
Halldór Steinsson
Ólafur Ingvar Guðfinnsson
Þorsteinn Magnússon

Gul spjöld:
Helgi Valur Daníelsson ('56)
Daði Ólafsson ('69)
Ólafur Ingi Skúlason ('75)

Rauð spjöld:
Ragnar Bragi Sveinsson ('74)

Leik lokið!
KR er Reykjavíkurmeistari 2019 (Staðfest)
93. mín
Óskar Örn fær gullið tækifæri til að bæta við fjórða markinu. Allir leikmenn Fylkis komnir langt upp völlinn og Pálmi Rafn á sendingu á Óskar sem er sloppinn einn í gegn. Aron Snær sér þó við Óskari, eins og nokkrum sinnum áður í þessum leik.
89. mín Gult spjald: Pálmi Rafn Pálmason (KR)
85. mín
Fylkismenn eru ekki búnir að gefast upp, en þetta er erfitt.
81. mín
Tíu mínútur eftir, stefnir allt í að KR verði Reykjavíkurmeistari í enn eitt skiptið.
79. mín Gult spjald: Ástbjörn Þórðarson (KR)
Spjöldunum rignir.
77. mín
Inn:Axel Andri Antonsson (Fylkir) Út:Hákon Ingi Jónsson (Fylkir)
77. mín
Óskar Örn í góðu færi en Aron ver vel. Það verður erfitt fyrir Fylki að koma til baka núna.
75. mín Gult spjald: Beitir Ólafsson (KR)
Fyrir að skipta sér af.
75. mín Gult spjald: Ólafur Ingi Skúlason (Fylkir)
74. mín
Þetta er ekki fallegt, það er allt að sjóða upp úr. Mönnum er heitt í hamsi.
74. mín Rautt spjald: Ragnar Bragi Sveinsson (Fylkir)
Beint rautt spjald fyrir tæklingu á Pálma.
73. mín
Inn:Hjalti Sigurðsson (KR) Út:Aron Bjarki Jósepsson (KR)
69. mín Gult spjald: Daði Ólafsson (Fylkir)
Daði fékk þá ekki gult spjald áðan.
69. mín Gult spjald: Kennie Chopart (KR)
Það er aðeins að hitna í kolunum. Tvö gul spjöld á loft.
66. mín
Óskar Örn með tilraun sem Aron Snær gerir vel í að verja.
62. mín
Það er kraftur í Fylkismönnum þessa stundina! Daði með skemmtilega tilraun rétt fram hjá markinu.
60. mín MARK!
Daði Ólafsson (Fylkir)
MARK!!! Þvílíkt mark, Daði Ólafsson skorar beint úr aukaspyrnu! Á Fylkir möguleika? ,,Það er nægur tími," er kallað af varamannabekk Fylkismanna.
58. mín
Fyrri hálfleikurinn verið rólegur það sem af er. Fátt um færi.
57. mín
Inn:Davíð Þór Ásbjörnsson (Fylkir) Út:Ari Leifsson (Fylkir)
57. mín
Inn:Arnór Gauti Ragnarsson (Fylkir) Út:Emil Ásmundsson (Fylkir)
Arnór Gauti kemur inn í sinn fyrsta leik fyrir Fylki.
56. mín Gult spjald: Helgi Valur Daníelsson (Fylkir)
46. mín
Inn:Pálmi Rafn Pálmason (KR) Út:Tobias Thomsen (KR)
46. mín
Leikur hafinn
Byrjað aftur!
45. mín
Hálfleikur
Sanngjörn staða í hálfleik. Fylkismenn voru nálægt því að minnka muninn undir lok hálfleiksins, það munaði sáralitlu.
43. mín

38. mín Mark úr víti!
Björgvin Stefánsson (KR)
Eins öruggt og það gerist.
37. mín
KR fær vítaspyrnu! Helgi var viss í sinni sök, en Fylkismenn voru mjög ósáttir.
31. mín
Fylkismenn í ágætis stöðu en ná ekki að koma boltanum á markið. Eru þeir að svara kalli mínu, og vakna?
30. mín
Næstum því 3-0! Aron Snær með frábæra vörslu! Óskar Örn tekur aukaspyrnu inn á teiginn og finnur hann Tobias inn í teignum. Tobias nær að stýra boltanum á markið en Aron Snær ver þetta snildarlega.

Fylkismenn verða að fara að vakna!
27. mín MARK!
Kennie Chopart (KR)
Stoðsending: Björgvin Stefánsson
Og þá kemur annað markið... Laglegur samleikur á milli Kennie og Björgvins sem endar með því að Kennie skorar. Stoðsendingin hjá Björgvini var glæsileg.
26. mín
Fylkir byrjaði sterkt, en Vesturbæingar hafa verið mun öflugri síðustu mínúturnar. Eru líklegri til að bæta við öðru en Fylkir að svara.
22. mín
Inn:Óskar Örn Hauksson (KR) Út:Atli Sigurjónsson (KR)
KR þarf að gera aðra breytingu vegna meiðsla. Ekki amalegt að hafa eitt stykki Óskar Örn Hauksson á bekknum.
19. mín MARK!
Pablo Punyed (KR)
MARK!!! Varamaðurinn Pablo Punyed að skora. Nýkominn inn á. Hitti boltann vel með vinstri eftir hornspyrnu.
17. mín
HVERNIG ENDAÐI ÞESSI EKKI INNI? Eftir mikinn darraðadans endar boltinn hjá Björgvini Stefánssyni sem er í algjöru dauðafæri. Hann nær ekki að renna boltanum inn. Björgvin á að vera kominn með tvennu, allavega eitt.
15. mín
Inn:Pablo Punyed (KR) Út:Kristinn Jónsson (KR)
Kristinn farinn meiddur af velli.
7. mín
Vil koma því á framfæri að þessi textalýsing verður í rólegri kantinum.
5. mín
Nú fengu Fylkismenn dauðafæri! Emil Ásmundsson fékk sendingu inn fyrir, flaggið fór ekki upp, en skot Emils fór fram hjá. Svo sannarlega algjört dauðafæri!

Bæði lið fengið mjög ákjósanlegt til að skora.
2. mín
Fyrsta færið! Björgvin Stefánsson fær mjög gott færi strax í byrjun leiks, en skot hans fer ekki á rammann.
1. mín
Leikur hafinn
KR-ingar eiga upphafssparkið.
Fyrir leik
Fylkir

Komnir:
Sam Hewson frá Grindavík

Farnir:
Ásgeir Börkur Ásgeirsson
Ásgeir Örn Arnþórsson í Aftureldingu
Elís Rafn Björnsson í Stjörnuna
Jonathan Glenn í ÍBV

Samningslausir:
Oddur Ingi Guðmundsson
Fyrir leik
Fyrir leik
Vinir okkar á SportTv sýna leiki kvöldsins í beinni en hægt er að sjá netútsendinguna með því að smella hérna.
Fyrir leik
Albert Brynjar Ingason er ekki í leikmannahópi Fylkis eins og í undanúrslitunum. Hann er líklega á leið í Inkasso-deildina. Eftir sigurinn á Fjölni sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, að það væru líkur á því en ekki að hann færi frá félaginu.
Fyrir leik
Fyrirliðarnir í dag eru Aron Bjarki Jósepsson hjá KR og Ólafur Ingi Skúlason hjá Fylki.
Fyrir leik
Fylkir gerir eina breytingu frá sigurleiknum á Fjölni. Emil Ásmundsson kemur inn í byrjunarliðið í stað Gylfa Gestssonar.
Fyrir leik
KR gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu sem vann Val 5-3. Ástbjörn Þórðarson og Gunnar Þór Gunnarsson koma inn fyrir Finn Tómas Pálmason og Óskar Örn Hauksson. Óskar Örn og Pálmi Rafn Pálmason eru báðir á varamannabekknum hjá KR.
Fyrir leik
KR hefur unnið Reykjavíkurmótið 38 sinnum á meðan Fylkir hefur aðeins unnið það fjórum sinnum. Vinnur KR í 39. sinn eða vinnur Fylkir í fimmta sinn?
Fyrir leik




Fyrir leik
KR vann Val 5-3 í mögnuðum leik í undanúrslitunum, en Fylkir lagði Fjölni að velli, 3-0.
Fyrir leik
Góðan og blessaðan,

Hér munum við fylgjast með úrslitaleik Reykjavíkurmóts karla. KR og Fylkir munu mætast í Egilshöllinni.