Besta kvenna
JBÓ völlurinn
30.05.2026 - 14:00
Dómari: Hreinn Magnússon
JBÓ völlurinn
30.05.2026 - 14:00
Dómari: Hreinn Magnússon

Grindavík/Njarðvík
0
5
Breiðablik

0-1
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
'1
0-2
Katelyn Duong
'15
0-3
Agla María Albertsdóttir
'51
0-4
Agla María Albertsdóttir
'64
0-5
Líf Joostdóttir van Bemmel
'67
Maður leiksins: Agla María Albertsdóttir
Byrjunarlið:
1. Lauren Kellett (m) 24
5. Natasha Anasi 35
('73)
('73)
9. Lily Anna Farkas 25
12. Hannah McLaughlin 23
17. Sophia Faith Romine 24
('73)
('73)
19. Rakel Sigurðardóttir 18
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f) 21
('73)
('73)
24. Danai Kaldaridou 28
('65)
('65)
26. Maci Nicole Teater 22
27. Hildur Katrín Snorradóttir 17
('58)
('58)
28. Emma Nicole Phillips 23
- Meðalaldur 24 ár
Varamenn:
20. Irma Rún Blöndal (m) 22
3. Brynja Pálmadóttir 27
6. Rut Sigurðardóttir 19
('73)
('73)
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir 24
9. Lea Björt Kristjánsdóttir 26
('73)
('73)
11. Eydís María Waagfjörð 19
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir 22
('65)
('65)
18. Ása Björg Einarsdóttir 22
('58)
('58)
23. Júlía Rán Bjarnadóttir 18
('73)
- Meðalaldur 22 ár
('73)
Liðsstjórn:
Gylfi Tryggvason (Þ) aldur 30
Þorsteinn Magnússon (MÞ) aldur 66
Lúðvík Már Matthíasson (Sjúkraþj.) aldur 30
Kamilla Ósk Jensdóttir (Liðsstj.) aldur 22
Armandas Leskys (AÞ) aldur 28
Gul spjöld:
Hannah McLaughlin ('60)
Rauð spjöld:Byrjunarlið:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m) 19
3. Elísa Viðarsdóttir 35
4. Elín Helena Karlsdóttir 24
7. Agla María Albertsdóttir (f) 27
8. Katelyn Duong 25
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir 20
('83)
('83)
15. Edith Kristín Kristjánsdóttir 18
('58)
('58)
17. Karitas Tómasdóttir 31
('83)
('83)
18. Kristín Dís Árnadóttir 27
19. Líf Joostdóttir van Bemmel 19
('71)
('71)
27. Barbára Sól Gísladóttir 25
- Meðalaldur 25 ár
Varamenn:
12. Taylor Kane (m) 23
5. Olga Ingibjörg Einarsdóttir 19
6. Mikaela Nótt Pétursdóttir 22
9. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 23
('71)
('71)
10. Bryndís Arna Níelsdóttir 23
21. Guðrún Þórarinsdóttir 17
('83)
('83)
26. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir 17
('83)
('83)
29. Sunna Rún Sigurðardóttir 18
('58)
- Meðalaldur 20 ár
('58)
Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ) aldur 44
Jóhanna Björk Gylfadóttir (Sjúkraþj.) aldur 36
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (AÞ) aldur 39
Stefán Logi Magnússon (AÞ) aldur 46
Hjörtur Fjeldsted (Styrktarþj.) aldur 45
Sæmundur Arnór Sigurðsson (Liðsstj.)
Gunnar Birgisson (AÞ) aldur 32
Gul spjöld:
Rauð spjöld:Leik lokið!
Blikar vinna 0-5 stórsigur
Breiðablik mjög góðar í dag og eiga þennan sigur skilið.
Takk fyrir mig, skýrsla væntanleg.
Takk fyrir mig, skýrsla væntanleg.
88. mín
Stórsókn Blika!
Blikar fá tvö góð færi í röð en Lauren ver bæði færin mjög vel og nær að handsama boltann.
83. mín
Inn:Guðrún Þórarinsdóttir (Breiðablik)
Út:Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Ása og Karitas voru mjög góðar hér í dag.
80. mín
Agla í færi!
Ólöf mjög sterk á kantinum og kemur boltanum á Öglu sem kemst í gott skotfæri en skýtur yfir.
Þarna var hún ekki langt frá þrennunni.
Þarna var hún ekki langt frá þrennunni.
73. mín
Inn:Lea Björt Kristjánsdóttir (Gri/Nja)
Út:Sigríður Emma F. Jónsdóttir (Gri/Nja)
71. mín
Inn:Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik)
Út:Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)
Líf frábær í dag
67. mín
MARK!
MARK!Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)
Stoðsending: Katelyn Duong
Stoðsending: Katelyn Duong
Þær eru að ganga frá þeim!!!
Líf fær boltann á miðjum vellinum og á frábæran sprett upp allan vallarhelminginn og klárar vel framhjá Lauren í markinu
64. mín
MARK!
MARK!Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Karitas Tómasdóttir
Stoðsending: Karitas Tómasdóttir
Frábærlega gert!
Karítas vinnur boltann á vallarhelming heimakvenna og kemur með rosalega góðan bolta inn á teiginn á Öglu Maríu sem skallar boltann vel í fjærhornið
60. mín
Gult spjald: Hannah McLaughlin (Gri/Nja)
Gult spjald: Hannah McLaughlin (Gri/Nja)
Fær gult fyrir að ýta frá sér eftir að það var brotið á henni
58. mín
Inn:Sunna Rún Sigurðardóttir (Breiðablik)
Út:Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik)
51. mín
MARK!
MARK!Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Líf Joostdóttir van Bemmel
Stoðsending: Líf Joostdóttir van Bemmel
Blikar bæta við!
Blikar vinna boltann á miðjum vellinum, Líf fær hann og vippar boltanum í gegn á Öglu sem klárar þetta vel í gegnum klofið á Lauren í markinu.
Skellur fyrir Gri/Njar konur sem höfðu byrjað þennan seinni hálfleik vel.
Skellur fyrir Gri/Njar konur sem höfðu byrjað þennan seinni hálfleik vel.
50. mín
Dauðafæri!!
Alveg sama uppskriftinn af færinu áðan. Rakel kemur með frábæran bolta inn á Emmu Nicole sem setur hann yfir í dauða færi en setur hann yfir.
47. mín
Strax komið færi!
Rakel gerir frábærlega á kantinum og kemur með fyrigjöfina á kollin á Emmu sem skallar yfir.
46. mín
Þá er þetta komið á stað aftur.
Breiðablik sparka þessum seinna hálfleik af stað.
45. mín
Hálfleikur
Fjörugur fyrri hálfleikur á enda.
Breiðablik leiðir 0-2. Breiðablik hafa verið hættulegar fram á við og nýtt sína sénsa vel.
Gri/Njar hafa átt góðar stöður og fín færi sem þær hafa ekki nýtt sér.
Gri/Njar hafa átt góðar stöður og fín færi sem þær hafa ekki nýtt sér.
43. mín
Gri/Njar fá hornspyrnu.
Hættuleg hornspyrna sem skoppar í teil Blika, þær hreinsa en ekki langt. Gri/Njar fá boltann fyrir utan teig og koma skoti á markið sem flaug yfir.
Hættuleg hornspyrna sem skoppar í teil Blika, þær hreinsa en ekki langt. Gri/Njar fá boltann fyrir utan teig og koma skoti á markið sem flaug yfir.
41. mín
Heimakonur fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu.
Hanna McLaughlin sterk í boxinu og nær að flikka boltanum í áfram og hann rennur framhjá.
Hanna McLaughlin sterk í boxinu og nær að flikka boltanum í áfram og hann rennur framhjá.
37. mín
Hættulegt!
Sigríður Emma með frábæra fyrirgjöf inn á teig Blika þar sem Emma Nicole er hársbreidd frá því að ná snertingu á boltann í dauðafæri.
36. mín
Færi!
Edith kemst í frábæra stöðu í teig Gri/Njar, sendir boltann fyrir á Öglu Maríu en sendingin er erftið í mittishæð og Agla setur boltann yfir með knénu.
35. mín
Heimakonur aðeins að láta taka til sín þessa stundina, eru að komast í flottar stöður en ná ekki að finna færi.
26. mín
Herdís heppinn þarna!
Herdís kærulaus í uppspili Blika, hún sendir boltann beint á Emmu Nicole sem nær sem betur fer fyrir hana ekki að koma boltanum fyrir sig og Blikar vinna boltann aftur.
22. mín
Þarna hefðu þær getað gert betur!
Frábær sókn Gri/Njar endar á misheppnaðri sendingu frá Lily í gegn ætlaða Sophiu Romine.
20. mín
Blikakonur fá aukaspyrnu á ágætis stað.
Agla María neglir á markið en aukaspyrnar og boltinn fer framhjá.
15. mín
MARK!
MARK!Katelyn Duong (Breiðablik)
Blikakonur refsa!
Agla María kemur með frábæran bolta í gegn á Ásu sem fellur niður í baráttunni við Natöshu, eftir það berst boltinn á Katelyn sem klárar þetta á einfaldan hátt í nánast autt marki.
Hreinn dómari hafði líklega dæmt víti á Natöshu ef Katelyn hefði ekki mætt inn á teiginn og skorað.
Hreinn dómari hafði líklega dæmt víti á Natöshu ef Katelyn hefði ekki mætt inn á teiginn og skorað.
14. mín
Gott samspil hjá Lily og Sigríði Emmu. Emma kemst í skotfæri rétt fyrir utan teig Blika kvenna en Blikar komast fyrir.
9. mín
Frábær varsla!
Lily Farkas með gott skot að marki Breiðabliks en Herdís ver þetta mjög vel í horn.
Breiðablik gerðu vel að verjast hornspyrnunni.
Breiðablik gerðu vel að verjast hornspyrnunni.
6. mín
Smá hætta við mark Gri/Njar.
Líf kemst í góða fyrirgjafastöðu og gefur góðan bolta fyrir en Lauren handsamar boltann.
1. mín
MARK!
MARK!Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Þetta tók ekki langan tíma!
Lauren Kellett markmaður Gri/Njar hrasar þegar hún ætlar að sparka boltanum upp völlin og boltinn fer beint á Ásu sem lyftir boltanum vel í markið.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindinn!
Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík gerir eina breytingu á sínu liði frá 1-1 jafnteflinu gegn ÍBV í síðustu umferð. Rakel Sigurðardóttir kemur inn í liðið á kostnað Ásu Bjargar Einarsdóttur.
Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks gerir einnig eina breytingu á sínu liði eftir 2-3 tap gegn FH í síðustu umferð. Líf Joostdóttir van Bemmel kemur inn í liðið og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir sest á bekkinn.

Dómaratríóið
Dómari leiksins í dag er hann Hreinn Magnússon og honum til halds og trausts eru þau Kristofer Bergmann og Eydís Ragna Einarssdóttir.

Fyrir leik
Breiðablik
Breiðablik hafa farið lista vel af stað í deildinni og sitja í 1. sæti með 5 sigra og eitt tap.
Tapið kom gegn FH í æsispennandi leik í síðustu umferð og verður fróðlegt að sjá hvernig liðið bregst við því bakslagi í leiknum í dag.
Markahæsti leikmaður Breiðabliks er Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir með 4 mörk og stuttu á eftir henni er hún Agla María Albertsdóttir með 3 mörk.

Gri/Njar eru nýliðar í Bestu deildinni og þær hafa farið nokkuð vel af stað í ár. Liðið situr í 6. sæti eftir 6 umferðið með 8 stig og komið í 8. liða úrslit í Mjólkurbikarnum í þokkabót eftir sigur á Val í 16. liða úrslitunum.
Natasha Anasi og Sophia Romaine eru markahæstar í liði Gri/Njar með 2 mörk hver.
Natasha Anasi og Sophia Romaine eru markahæstar í liði Gri/Njar með 2 mörk hver.

Fyrir leik
Arnar Páll spáir Blikasigri
Fótboltaþjálfarinn Arnar Páll Garðarsson fékk það verkefni að spá í leiki umferðarinnar.
Grindavík/Njarðvík 1 - 3 Breiðablik (14:00)
Mest spennandi leikur umferðarinnar. Hér fáum við opnari leik og jafnvel smá vott af Samba bolta. Ég bið um opinn leik og 1-3 sigur Breiðabliks. Ása fagnar landsliðssæti með tvennu.
Vonum að spá hans um fjörugan og opin leik rætist.

Ása í landsliðið
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir markahæsti leikmaður Breiðabliks á tímabilinu hingað til var kölluð upp í landsliðið á dögunum.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ása er valin í A-landslið kvenna en hún á að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands.
Þetta er í fyrsta sinn sem Ása er valin í A-landslið kvenna en hún á að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands.

Fyrir leik
7. umferðin
7. umferðin lítur svona út:
Í gær:
19:15 Valur 0-1 Þróttur
Í dag
14:00 Grindavík/Njarðvík-Breiðablik
14:00 FH-Fram
14:00 Þór/KA-Víkingur R.
14:00 Stjarnan-ÍBV
7. umferðin er síðasta umferðin fyrir tveggja vikna landsleikjarhlé þar sem Íslenska kvennalandsliðið spilar síðustu tvo leikina í undankeppni heimsmeistaramótsins 2027 gegn Úkraínu og Spáni dagana 5 og 9 júní.