Elvira Agla Gunnarsdóttir, leikmaður ÍA á Akranesi, hefur gert nýjan tveggja ára samning við félagið.
Elvira kemur upp úr unglingastarfi ÍA og spilaði sinn fyrsta mótsleik fyrir tveimur árum.
Hún á í heildina 20 leiki fyrir félagið, þar af níu í deild- og bikar og ellefu leiki í deildarbikar.
Elvira, sem er 18 ára gömul, er öflugur varnarmaður, sem hefur nú skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
ÍA mætir Grindavík í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar en sá leikur fer fram í Akraneshöllinni á mánudag.
Athugasemdir