Undanúrslit Evrópudeildarinnar hefjast klukkan 19:00 í kvöld en Marseille tekur á móti Atalanta á meðan Roma spilar við Bayer Leverkusen í Róm.
Ítalska liðið Atalanta henti Liverpool út í 8-liða úrslitum á meðan Marseille vann Benfica.
Roma og Leverkusen mætast á sama tíma. Lærisveinar Xabi Alonso í Leverkusen hafa ekki enn tapað leik á tímabilinu, en gæti fyrsta tapið komið í kvöld?
Leikir dagsins:
19:00 Marseille - Atalanta
19:00 Roma - Leverkusen
Athugasemdir