Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   lau 04. maí 2024 17:31
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Haaland með þrennu í fyrri hálfleik
Erling Braut Haaland er markahæstur með 24 mörk
Erling Braut Haaland er markahæstur með 24 mörk
Mynd: Getty Images
Norski sóknarmaðurinn Erling Braut Haaland er að stinga af í baráttu um markakóngstitlinn á Englandi en hann er kominn með þrennu í fyrri hálfleik gegn Wolves.

Haaland var með eins marks forystu á Alexander Isak fyrir leik Manchester City og Wolves í dag.

Norðmaðurinn ætlar ekki að fara tapa gullskó deildarinnar á síðustu metrunum. Hann er kominn með tvö mörk úr vítaspyrnu og eitt með skalla eftir fyrirgjöf Rodri.

Nú er sóknarmaðurinn kominn með 24 mörk í deildinni og að sjá til þess að Man City verði í titilbaráttunni fram að síðasta leik en hægt er að sjá öll mörk hans hér fyrir neðan.

Staðan er 3-0 fyrir Man City í hálfleik.

Sjáðu fyrra vítaspyrnumarkið
Sjáðu annað mark hans
Sjáðu Haaland fullkomna þrennuna
Athugasemdir
banner
banner