lau 04. maí 2024 12:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tottenham hlustar á tilboð í Richarlison
Mynd: Getty Images

Tottenham er tilbúið að hlusta á tilboð í marga leikmenn í sumar. Þar á meðal Richarlison.


Ange Postecoglou er sagður vilja fá nýjan framherja. Richarlison hefur verið orðaður við félög í Sádí-Arabíu.

Enska félagið mun einnig hlusta á tilboð í Pierre-Emile Hojbjerg og Emerson Royal.

The Telegraph greinir frá því að Yves Bissouma sé ekki einn af þessum leikmönnum en ef mjög gott tilboð berst í Fílbeinsstrendinginn mun félagið þurfa að skoða það.


Athugasemdir
banner
banner