Þau voru nokkur atvikin sem þóttu umdeild í 3-1 sigri HK á Víkings í Bestu deild karla í Kórnum í kvöld, en eitt þeirra átti sér stað í fyrri hálfleiknum.
Lestu um leikinn: HK 3 - 1 Víkingur R.
Atli Hrafn Andrason, leikmaður HK, fór heldur harkalega í Danijel Dejan Djuric, leikmann Víkings, við miðsvæðið, en atvikið gerðist á 37. mínútu í stöðunni 1-0 fyrir HK.
Nokkrir voru í baráttu um boltann, sem endaði hjá Danijel. Atli mætti því næst og sparkaði af miklu afli í Danijel sem endaði í gervigrasinu.
„Atli Hrafn sparkar bara í Djuric og fær gult spjald fyrir, Atli heppinn að fá bara gula spjaldið þarna. Pablo Punyed er ekki sáttur og ýtir við Atla eftir brotið.,“ sagði Kári Snorrason, fréttaritari Fótbolta.net, í textalýsingu sinni.
Það voru læti í kringum þetta atvik en Atli uppskar aðeins gult spjald fyrir. Atvikið má sjá hér fyrir neðan.
„GALIÐ!!! Hvernig er þetta gult spjald?“ sagði og spurði Hörður Ágústsston, markaðs- og viðburðastjóri Víkings, á X.
GALIÐ!!! Hvernig er þetta gult spjald? pic.twitter.com/6Z3HqeQAoU
— Hörður ? (@horduragustsson) May 5, 2024
Víkingar vildu einnig fá tvær vítaspyrnur undir lok leiks og þá var Arnar Gunnlaugsson rekinn af velli í kjölfarið fyrir mótmæli.
Annað umdeilt atvik gerðist í leiknum þegar Pablo Punyed skallaði George Nunn, leikmann HK, í magann, en fékk aðeins gult spjald fyrir.
Athugasemdir