Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   sun 05. maí 2024 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Söguleg frammistaða Messi í nótt
Messi og Suarez voru í ham í nótt
Messi og Suarez voru í ham í nótt
Mynd: Getty Images
Lionel Messi og Luis Suarez buðu áhorfendum á Chase-leikvanginum í Fort Lauderdale í Flórida upp á flugeldasýningu í nótt.

Messi var á dögunum valinn besti leikmaður mánaðarins og stefnir í að hann taki verðlaunin annan mánuðinn í röð.

Argentínumaðurinn var með fimm stoðsendingar og eitt mark í 6-2 sigri Inter Miami á New York Red Bulls. Besti vinur hans og liðsfélagi, Luis Suarez, skoraði þrennu.

Miami kynnti nýjan leikmann til leiks, Matias Rojas. Paragvæski landsliðsmaðurinn skoraði tvö frábær mörk og lagði auðvitað Messi upp bæði.

Messi og Suarez léku sér svo að Red Bulls á þrettán mínútum. Argentínumaðurinn lagði upp öll þrjú mörkin fyrir Suarez, sem minnti á gömlu góðu tímana hjá Barcelona.

Þetta er þá í fyrsta sinn í sögu MLS-deildarinnar þar sem leikmaður er með fimm stoðsendingar í einum og sama leiknum.

Inter Miami er á toppnum í Austur-deildinni með 24 stig eftir 12 leiki. Liðið hefur skorað 32 mörk en aftur á móti fengið á sig 18 á tímabilinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner