Man Utd gæti fengið Donnarumma ef Inter kaupir Onana - Tottenham reynir við Eze - Vardy óvænt orðaður við Napoli
   sun 06. mars 2016 19:51
Alexander Freyr Tamimi
Allegri ósáttur við Pogba: Hann hætti að spila
Þrátt fyrir 2-0 sigur Juventus gegn Atalanta í Seríu A í dag var þjálfarinn Massimiliano Allegri alls ekki sáttur með miðjumanninn Paul Pogba.

Franski landsliðsmaðurinn fékk að líta gult spjald í leiknum og sagði Allegri að það hefði greinilega haft áhrif á leik hans. Pogba er talinn einn besti miðjumaður heims en Allegri lét hann samt heyra það.

„Paul Pogba er leikmaður sem getur gert gæfumuninn ef hann spilar einfalt og er einbeittur," sagði Allegri við Sky Sport Italia.

„Hann var spjaldaður og lét það hafa áhrif á sig. Hann missti taktinn í seinni hálfleik og hætti í raun bara að spila."

Athugasemdir
banner