Valsmenn gerðu sér góða ferð í Kópavoginn þar sem þeir mættu Breiðablik í lokaleik 5.umferðar Bestu deildar karla. Um var að ræða stórleik umferðarinnar og hann svo sannarlega brást ekki.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 3 Valur
„Hrikalega sáttur með sigurinn. Þetta var erfitt og varð nátturlega miklu erfiðara þegar þú ert einum færri." Sagði Arnar Grétarsson þjálfari Vals eftir leikinn í kvöld.
„Ég veit ekki hvort það séu búnar fjórar eða fimm mínútur í seinni hálfleik. Þessi völlur er alveg nógu erfitt að koma hingað og sækja sigur 11 á móti 11 og vera einum færri í svona langan tíma og skapa okkur helling af færum í stöðunni 10 á móti 11, það finnst mér rosalega vel gert hjá þeim."
Valur missti Adam Ægi Pálsson útaf með rautt snemma í seinni hálfleik og Arnar Grétarsson fékk svo sjálfur rautt í kjölfarið.
„Ég veit ekki nákvæmlega hvað gerðist þar með þennan bolta en svo er það bara þannig að þjálfarar Breiðabliks eru að biðja um gult spjald á hann og eru mjög aggresívir úti á hliðarlínu."
„Fyrir það fyrsta má bara einn standa úti á línu en ekki tveir eða þrír. Þeir voru mjög aggresívir og svo voru einhver orðaskipti og hann svarar þeim eitthvað og fyrir það fær hann gult spjald, fyrir að svara einhverju þegar þeir biðja um gult spjald á hann. Fyrir það fyrsta finnst mér það mjög dapurt hjá þeim og svo að þeir skuli gefa honum gult spjald fyrir það að hann sé eitthvað að svara pínku pons að mér finnst þetta vera komið út í algjöra þvælu."
Nánar er rætt við Arnar Grétarsson í spilaranum hér fyrir ofan.
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 6 | 5 | 0 | 1 | 14 - 6 | +8 | 15 |
2. Breiðablik | 6 | 4 | 0 | 2 | 15 - 9 | +6 | 12 |
3. FH | 6 | 4 | 0 | 2 | 10 - 9 | +1 | 12 |
4. Valur | 6 | 3 | 2 | 1 | 9 - 5 | +4 | 11 |
5. Fram | 6 | 3 | 2 | 1 | 7 - 4 | +3 | 11 |
6. Stjarnan | 6 | 3 | 1 | 2 | 8 - 7 | +1 | 10 |
7. ÍA | 6 | 3 | 0 | 3 | 14 - 9 | +5 | 9 |
8. KR | 6 | 2 | 1 | 3 | 11 - 11 | 0 | 7 |
9. HK | 6 | 2 | 1 | 3 | 6 - 10 | -4 | 7 |
10. Vestri | 6 | 2 | 0 | 4 | 4 - 12 | -8 | 6 |
11. KA | 6 | 0 | 2 | 4 | 7 - 13 | -6 | 2 |
12. Fylkir | 6 | 0 | 1 | 5 | 5 - 15 | -10 | 1 |