Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   þri 07. maí 2024 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ekki í plönum Chelsea fyrir næsta tímabil
Armando Broja.
Armando Broja.
Mynd: EPA
Armando Broja hefur ekki riðið feitum hesti á láni hjá Fulham síðustu mánuðina, og það verður ekki mikið pláss fyrir hann þegar hann snýr aftur til Chelsea í sumar.

Broja, sem er 22 ára gamall sóknarmaður, hefur ekki byrjað einn einasta deildarleik frá því hann kom til Fulham á láni frá Chelsea í janúarglugganum.

Hann hefur komið sjö sinnum inn á sem varamaður en ekki enn skorað mark.

Fabrizio Romano segir frá því í dag að Chelsea sé að plana að losa sig við Broja í sumar og búist er við því að hann verði seldur.

Þó hann hafi ekki gert merkilega hluti í ensku úrvalsdeildinni á yfirstandandi tímabili, þá eru einhver félög í deildinni að skoða hann og er líka áhugi á honum annars staðar í Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner