Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   mið 08. maí 2024 19:24
Brynjar Ingi Erluson
Galatasaray kaupir Ziyech frá Chelsea
Mynd: Galatasaray
Tyrkneska félagið Galatasaray hefur ákveðið að nýta kaupákvæði í lánssamningi Hakim Ziyech en þetta segir enska blaðið Standard í dag.

Ziyech, sem er 31 árs gamall, kom til Galatasaray á láni frá Chelsea í ágúst á síðasta ári.

Í samningnum var kaupákvæði upp á tæpar 3 milljónir evra og hefur Galatasaray ákveðið að nýta það.

Sóknartengiliðurinn hefur gert góða hluti á tíma sínum í Tyrklandi, skorað átta og gefið fjórar stoðsendingar í 21 leik.

Ziyech varð Evrópumeistari með Chelsea árið 2021 og spilaði alls 39 leiki í öllum keppnum það tímabilið, en fékk lítinn spiltíma þegar Graham Potter tók við liðinu ári síðar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner