Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   mið 08. maí 2024 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd með augastað á Adarabioyo
Tosin Adarabioyo.
Tosin Adarabioyo.
Mynd: Getty Images
Manchester United er eitt þeirra félaga sem hefur áhuga á því að fá varnarmanninn Tosin Adarabioyo á frjálsri sölu í sumar. Þetta herma heimildir ESPN.

Adarabioyo verður samningslaus í sumar og hefur ekki enn skrifað undir samning við Fulham. Sagan segir að hann ætli sér að róa á önnur mið í sumar.

Chelsea, Newcastle og Tottenham hafa einnig verið orðuð við þennan öfluga miðvörð.

Adarabioyo er 26 ára gamall Englendingur en hann hefur leikið með Fulham síðustu fjögur ár.

Adarabioyo er uppalinn hjá Manchester City og á 14 landsleiki fyrir yngri landslið Englands.
Athugasemdir
banner
banner
banner