Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
   fim 09. maí 2024 13:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jorginho búinn að framlengja við Arsenal
Mynd: Getty Images

Jorginho hefur skrifað undir nýjan samning við Arsenal til ársins 2025.


Jorginho er 32 ára gamall ítalskur miðjumaður en hann gekk til liðs við Arsenal frá Chelsea í janúar í fyrra og hefur komið af miklum krafti inn í liðið.

Hann hefur komið við sögu í 23 leikjum í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð og liðið hefur aðeins tapað einum leik sem hann hefur tekið þátt í.

„Ég er ánægður að vera áfram. Það var ekki mikið til að ræða þar sem mér líður mjög vel hér. Ég veit að þeir kunna vel að metamig, það er stórt fyrir mig. Ég finn það á mér að ég á margt ógert og þess vegna er ég áfram," sagði Jorginho.


Athugasemdir
banner
banner
banner