Marco Reus leikmaður Dortmund mun yfirgefa félagið eftir tímabilið en þessi 34 ára gamli leikmaður hefur verið í 12 ár hjá félaginu.
The Athletic greinir frá því að St. Louis City sem leikur í MLS deildinni í Bandaríkjunum hefur haft samband við hann en samningur Reus við Dortmund rennur út í sumar.
Nökkvi Þeyr Þórisson er leikmaður St. Louis City en hann hefur verið í litlu hlutverki í upphafi tímabilsins.
Viðræður St. Louis og Reus eru ekki komnar langt á leið en hann hefur úr mörgum möguleikum að velja samkvæmt heimildum The Athletic. Roman Burki markmaður St. Louis City var liðsfélagi Reus hjá Dortmund í sjö ár frá 2015-2022.
Athugasemdir