Arne Slot, þjálfari Feyenoord í Hollandi, segir að hann verði kynntur á næstu dögum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool.
Enskir miðlar hafa greint frá því að Liverpool sé búið að ná samkomulagi við Slot.
Hann á að taka við liðinu af Jürgen Klopp eftir tímabilið en Slot hefur verið óhræddur við að tala um nýja þjálfarastarfið, þó hann hafi ekki einu sinni verið kynntur.
„Ég segi þetta í hvert einasta skipti, þetta fer að gerast hvað á hverju. Staðan er sú sama. Svona hlutir taka aðeins lengri tíma en að fara í búðina með innkaupalista og strika yfir hluti á honum.“
„Þetta eru hlutir sem þurfa að vera rétt tímasettir og allt þarf að vera leyst. Stundum eru líka aðrir hlutir tengdir því, þannig allir þessir þættir spila inn í sem þýðir að það er ekki komin tilkynning, en hafið engar áhyggjur það mun gerast,“ sagði Slot við 1908.nl.
Athugasemdir