Eiður Atli Rúnarsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við HK. Fyrri samningur var að renna út.
„Eiður er fæddur árið 2002 og er uppalinn HK-ingur. Eiður spilaði 17 leiki í Bestu Deild karla með félaginu í sumar auk þess var hann einnig í æfingahóp U-21 landsliðs Íslands fyrr á árinu," segir í tilkynningu HK.

Leiknir hafði áhuga á því að fá varnarmanninn í sínar raðir en hann ákvað á endanum að endursemja við HK.
Komnir
Hjörvar Daði Arnarsson frá Hetti (var á láni)
Ólafur Örn Ásgeirsson frá ÍR (var á láni)
Farnir
Ahmad Faqa til AIK (var á láni)
Örvar Eggertsson í Stjörnuna
Sigurbergur Áki Jörundsson í Stjörnuna (var á láni)
Samningslausir
Hassan Jalloh (1998) - 16.10
Arnþór Ari Atlason (1993) - 16.10
Leifur Andri Leifsson (1989) - 16.10
Kristján Snær Frostason (2005) - 31.12
Tumi Þorvarsson (2005) - 31.12
Vendingar. Eiður Atli kominn með nýtt tilboð á borðinu frá HK. Improved offer. Stefnir í að hann verði áfram í HK. https://t.co/Ew1Q5ISrYS
— JS el johann (@Eljohann4) November 11, 2023
Athugasemdir