Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. nóvember 2018 18:15
Brynjar Ingi Erluson
Roma vill fá Ashley Young á frjálsri sölu
Ashley Young verður samningslaus næsta sumar
Ashley Young verður samningslaus næsta sumar
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Roma ætlar að bjóða Ashley Young, leikmanni Manchester United á Englandi, samning í janúar, en enskir fjölmiðlar greina frá þessu í dag.

Þessi 33 ára gamli vinstri bakvörður verður samningslaus næsta sumar en hann var nýlega gerður að fyrirliða United.

Samningaviðræður ganga hægt við United en hann getur byrjað að ræða við önnur félög í janúar.

Samkvæmt The Sun þá hefur Roma fylgst með samningaviðræðum Young og mun félagið bjóða honum samning í janúar.

Enski landsliðsmaðurinn kom til United frá Aston Villa árið 2011 en hlutverk hans hefur breyst á síðustu árum eftir að hann var færður af vængnum og í bakvörðinn.
Athugasemdir
banner
banner