„Þeir voru betri en við á boltann en opnuðu okkur ekki rosalega mikið. Við vorum þéttir og lágum aftarlega en hefðum kannski mátt stiga ofar aðeins oftar," sagði Albert Guðmundsson við Fótbolta.net eftir 2-0 tap gegn Belgum í Þjóðadeildinni í kvöld.
Albert átti góðan leik en hann var í fyrsta skipti í byrjunarliði í mótsleik. Albert komst næst því að skora þegar hann átti skot sem Thibaut Courtois varði.
Albert átti góðan leik en hann var í fyrsta skipti í byrjunarliði í mótsleik. Albert komst næst því að skora þegar hann átti skot sem Thibaut Courtois varði.
„Það var bara slappt skot og hann varði það vel. Það hefði verið nice að skora en því miður fór hann ekki inn."
Albert fékk gula spjaldið í fyrri hálfleik fyrir brot á Youri Tielemans.
„Ég á eftir að sjá þetta aftur. Ég steig á hann en það var ekki viljaverk. Ég lét vita að þetta var óvart og það var óþarfi að gefa mér gult."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir