Alfreð Finnbogason, framherji Augsburg, datt út úr byrjunarliði íslenska landsliðsins rétt fyrir leikinn gegn Belgum í kvöld.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.
Alfreð meiddist í upphitun en hann labbaði til búningsklefa aðeins á undan öðrum liðsfélögum sínum.
Arnór Ingvi Traustason kom inn í byrjunarliðið á síðustu stundu.
Arnór Ingvi byrjaði leikinn á miðjunni og Arnór Sigurðsson fór upp í fremstu víglínu.
Arnór og Albert Guðmundsson byrja saman frammi. Arnór er að spila sinn fyrsta landsleik og Albert er í fyrsta skipti í byrjunarliðinu í mótsleik.
Alls eru ellefu leikmenn fjarverandi vegna meiðsla í leiknum í kvöld eftir meiðsli Alfreðs.
Athugasemdir