Kólumbíski leikmaðurinn James Rodriguez verður ekki með Bayern München næstur vikur vegna meiðsla á hné.
Rodriguez, sem er í láni hjá Bayern frá Real Madrid, hefur gert frábæra hluti með þýska liðinu og ljóst að áhuginn verður mikill á honum næsta sumar er lánssamningnum lýkur.
Hann hefur spilað ellefu leiki með Bayern á þessu tímabili en hann verður þó ekki með liðinu næstu vikur.
Hann meiddist á hné en félagið vildi þó ekki gefa upp nákvæma dagsetningu á endurkomu hans.
Athugasemdir