banner
   fim 15. nóvember 2018 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Witsel ætlar ekki að raka hárið eins og Fellaini
Icelandair
Axel Witsel er með myndarlega greiðslu en Marouane Fellaini ákvað að raka hárið af
Axel Witsel er með myndarlega greiðslu en Marouane Fellaini ákvað að raka hárið af
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Axel Witsel, leikmaður belgíska landsliðsins, ætlar ekki að raka allt hárið af sér eins og Marouane Fellaini, liðsfélagi hans í belgíska landsliðinu.

Witsel og félagar í belgíska liðinu undirbúa sig undir leik liðsins gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í kvöld.

Hann var mættur á blaðamannafund til að ræða leikinn en blaðamenn vildu þó helst fá að vita hvort hann ætlaði sér að raka hárið af.

Marouane Fellaini og Witsel hafa verið að skarta afrógreiðslunni í Evrópuboltanum og vakið talsverða athygli en Fellaini ákvað að raka hárið af. Witsel er ekki þó ekki sannfærður.

„Mér leist betur á hann með afrógreiðsluna en núna er hann með sömu greiðslu og hann var með þegar hann spilaði með Standard. En það er ekki séns að ég geri það sama," sagði Witsel.
Athugasemdir
banner
banner
banner