Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. nóvember 2018 18:00
Arnar Helgi Magnússon
Giroud réði ekkert við Hazard á fyrstu æfingunni
Liðsfélagar.
Liðsfélagar.
Mynd: Getty Images
Olivier Giroud gekk í raðir Chelsea frá Arsenal í janúar síðastliðnum. Hann gerði átján mánaða samning við félagið og var kaupverðið talið vera í kringum átján milljónir punda.

Giroud hefur ekki enn náð að skora fyrir Chelsea í deildinni á tímabilinu. Síðan hann kom til Chelsea hefur hann spilað 22 leiki og skorað í þeim fjögur mörk.

„Þegar ég spilaði á móti Hazard á fyrstu æfingunni minni hjá Chelsea hugsaði ég allan tímann „F***, það er ekki hægt að ná boltanum af honum."

„Þið sjáið það bara í leikjum. Það eru kannski 2-3 leikmenn alveg í honum en hann finnur samt leiðir til þess að komast frá andstæðingnum með boltann."

„Hann er töframaður með boltann. Ég er farinn að þekkja hann betur og farinn að staðsetja mig betur þegar hann er nálægt, ég veit hvar hann vill mig. Það er gott fyrir okkur báða."
Athugasemdir
banner
banner
banner