Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. nóvember 2018 09:30
Arnar Helgi Magnússon
Neymar segir Emery eiga eftir að ná frábærum árangri með Arsenal
Mynd: Getty Images
Brasilíski töframaðurinn Neymar ber Unai Emery söguna vel en hann lék undir hans stjórn hjá PSG áður en að Emery tók við Arsenal í sumar.

Emery hefur byrjað vel hjá Arsenal en liðið hefur ekki tapað síðan 18. september en þá töpuðu þeir fyrir Chelsea, 3-2.

„Þeir eru á frábærri siglingu og tapa ekki leik. Flestir sem vinna undir stjórn Emery eru fljótir að átta sig á því að Emery er frábær knattspyrnustjóri."

„Maður sér hversu mikil gæðum hann býr yfir. Mér fannst frábært að vinna undir hans stjórn. Hann vinnur daga og nætur og hann leggur sig allan fram á æfingum við það að gera sína leikmenn betri."

Brasilía mætir Úrúgvæ í æfingaleik í kvöld og Neymar er að sjálfsögðu í leikmannahóp Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner