Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 16. nóvember 2018 17:08
Arnar Helgi Magnússon
Sancho valinn leikmaður mánaðarins í Bundesligunni
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho, leikmaður Borussia Dortmund hefur verið útnefndur leikmaður mánaðarins í þýsku Bundesligunni.

Sancho hefur skotist upp á stjörnuhimininn á stuttum tíma en hann hefur verið magnaður í liði Dortmund sem sittur í toppsæti deildarinnar.

Sancho var í byrjunarliði Englands sem mætti USA í vináttulandsleik í gærkvöldi, hans fyrsti í byrjunarliði.

Fjögur mörk í sex leikjum hjá Sancho í október mánuði.

Þetta er hans annað tímabil í Þýskalandi en hann kom til Dortmund frá Manchester City. Hann segist ánægður með þá ákvörðun að hafa farið til Dortmund.

„Ég er mjög ánægður með þessa ákvörðun hjá mér. Ég hef aldrei séð aðra eins fótboltamenningu eins og í þessari borg."

Sancho hafði betur en Achraf Hakimi, Luka Jovic, Sebastien Haller, Jonas Hoffmann og Marcel Halstenberg í kosningunni um leikmann október mánaðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner