Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. nóvember 2018 13:30
Arnar Helgi Magnússon
Witsel segir félagsskiptin til Dortmund þau bestu á ferlinum
Witsel í leiknum gegn Íslandi í gær.
Witsel í leiknum gegn Íslandi í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Axel Witsel átti fínan leik í liði Belga gegn Íslandi í Þjóðardeildinnii í gærkvöldi. Witsel lék allar 90 mínúturnar inná miðsvæðinu hjá Belgum.

Witsel gekk í raðir Dortmund fyrir leiktíðina en lið Dortmund situr í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið en hann kom frá Tianjin Quanjian.

„Að fara til Dortmund er besta ákvörðun sem að ég hef tekið á mínum leikmannaferli. Ég hef aldrei spilað með betri leikmönnum en ég er að gera akkurat núna."

„Það sem er einnig kostur við þessi skipti er að borgin er frábær. Fjölskyldunni líður vel og við erum nálægt heimalandinu."

Witzel vill þó ekki tala um titilinn strax.

„Þó svo að við höfum unnið Bayren þá er ekki rétti tímapunkturinn til þess að fara að ræða titilinn."

„Við höldum áfram að vera 100% fókuseraðir á verkefnin sem eru framundan."
Athugasemdir
banner
banner
banner