Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
banner
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
föstudagur 29. mars
Championship
Blackburn - Ipswich Town - 17:30
Bristol City 1 - 0 Leicester
Cardiff City - Sunderland - 15:00
Huddersfield - Coventry - 15:00
Hull City - Stoke City - 15:00
Millwall 1 - 1 West Brom
Norwich - Plymouth - 15:00
Preston NE - Rotherham - 15:00
QPR - Birmingham - 15:00
Sheff Wed - Swansea - 15:00
Southampton - Middlesbrough - 15:00
Watford - Leeds - 20:00
Division 1 - Women
Paris W - Montpellier W - 20:00
Úrvalsdeildin
Dinamo - Rostov - 16:30
La Liga
Cadiz - Granada CF - 20:00
banner
fim 18.feb 2021 12:50 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Egill glímdi við mikla óvissu en ákvað að brosa í gegnum erfiðleikana

Egill Darri Makan Þorvaldsson gekk í raðir Kórdrengja frá FH eftir síðasta tímabil. Egill er sonur Þorvalds Makans Sigbjörnssonar sem lék á sínum tíma landsleik og í atvinnumennsku með Öster og Stoke.

Fótbolti.net hafði samband við Egil í vikunni og spurði hann út í skiptin, tímann hjá FH, meiðslin sem héldu honum frá allt árið 2019 og annað tilfallandi. Egill verður tvítugur í mars.

Ég fann það strax að þetta var þjálfari sem getur hjálpað mér í að verða betri leikmaður
Ég fann það strax að þetta var þjálfari sem getur hjálpað mér í að verða betri leikmaður
Mynd/Kórdrengir
Núna átta ég mig betur á því að ákveðnar brekkur á ferlinum hjálpa þér að verða enn öflugri.
Núna átta ég mig betur á því að ákveðnar brekkur á ferlinum hjálpa þér að verða enn öflugri.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sá að FH væri félag sem mig langaði að sanna mig hjá
Sá að FH væri félag sem mig langaði að sanna mig hjá
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Þegar lið eins og FH kemur og býður manni að æfa meistaraflokksbolta þá er valið að sjálfsögðu einfalt
Þegar lið eins og FH kemur og býður manni að æfa meistaraflokksbolta þá er valið að sjálfsögðu einfalt
Mynd/FH
Ég var sáttur við mína innkomu hjá Þrótti
Ég var sáttur við mína innkomu hjá Þrótti
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varðandi spilamennsku var ég heilt yfir sáttur með það sem ég náði að sýna.
Varðandi spilamennsku var ég heilt yfir sáttur með það sem ég náði að sýna.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eftir að ég meiddist tók við tímabil hjá mér sem tók mjög á
Eftir að ég meiddist tók við tímabil hjá mér sem tók mjög á
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Það sem mér fannst skipta máli í mínum meiðslum er brosið
Það sem mér fannst skipta máli í mínum meiðslum er brosið
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Með því að mæta með bros á æfingar, í styrktarþjálfun og heim til fjölskyldurnar þá varð þetta einhvern veginn allt miklu auðveldara.
Með því að mæta með bros á æfingar, í styrktarþjálfun og heim til fjölskyldurnar þá varð þetta einhvern veginn allt miklu auðveldara.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var það erfiðasta við meiðslin, að vita aldrei almennilega hversu langan tíma þetta tæki.
Það var það erfiðasta við meiðslin, að vita aldrei almennilega hversu langan tíma þetta tæki.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég var mjög nálægt því að hætta þar sem ég sá ekki fram á það að geta spilað aftur fótbólta á háu stigi.
Ég var mjög nálægt því að hætta þar sem ég sá ekki fram á það að geta spilað aftur fótbólta á háu stigi.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég vildi vinna undir mönnum sem eru með allt 100% og höfðu 100% trú á mér.
Ég vildi vinna undir mönnum sem eru með allt 100% og höfðu 100% trú á mér.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Síðan þegar það er klárt þá fer ég að huga af öðru en núna er ég leikmaður Kórdrengja og einbeitingin 100% á því
Síðan þegar það er klárt þá fer ég að huga af öðru en núna er ég leikmaður Kórdrengja og einbeitingin 100% á því
Mynd/Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Ég fékk mjög gott samningsboð frá þeim en langaði að vinna mig inn í byrjunarlið FH
Ég fékk mjög gott samningsboð frá þeim en langaði að vinna mig inn í byrjunarlið FH
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ef þú brosir, talar um tilfinningar þína og ferð jákvæður inn í daginn þá kemstu í gegnum hvaða meiðsli sem er"
Vildi æfa með fleiri leikmönnum sem stefndu í sömu átt
Við hefjum yfirferðina yfir feril Egils í Kópavogi, hann byrjaði hjá HK í yngri flokkunum en skipti yfir í Breiðablik árið 2015, hvers vegna?

„Mig langaði í raun og veru, á þeim tíma, að fá aftur löngun til að mæta á æfingar, vilja leggja mig fram og þurfa þess líka. Breiðablik í mínum árgangi var með mjög öflugt lið, betra lið en HK. Á þeim tíma taldi ég að það væri mér fyrir bestu að skipta um lið til þess að æfa með fleiri leikmönnum sem stefndu í sömu átt og ég. Í grunninn vildi ég komast í betra lið," sagði Egill.

Hvernig voru þessi þrjú ár með Blikum, var þetta sigursælt lið í yngri flokkum?

„Það var geggjað að vera í Breiðabliki, mjög góð þrjú ár. Bæði þjálfarar og leikmenn voru góðir og skemmtilegir og það er í raun og veru alveg ótrúlegt að við höfum ekki unnið neinn alvöru málm saman miðað við mannskap og gæði þjálfunnar."

Var í leit að mínútum í meistaraflokki
Hvers vegna skiptiru yfir í FH árið 2018?

„Ég vildi fá einhverjar meistaraflokks mínútur og fórum við feðgar vel yfir hluti hjá öðrum liðum, FH kom best út í þeim málum. Það voru nokkur lið sem höfðu sýnt mér áhuga en ég sá eftir góða yfirferð að FH væri félag sem mig langaði að sanna mig hjá."

Hvernig náði Óli Kristjáns að sannfæra þig um að FH væri rétta skrefið á þessum tíma?

„Það var í raun og veru ekkert eitt rétt skref á þessum tíma og það þurfti ekki mikla sannfæringu. Ég vissi að það var sama hvaða lið hefði orðið fyrir valinu, ég hefði alltaf þurft að leggja gríðarlega mikið á mig innann sem utan vallar til þess að ná þeim væntingum sem ég hafði til mín á þeim tíma."

„Á þeim tíma var ég eingöngu í öðrum flokki Breiðabliks og þegar lið eins og FH kemur og býður manni að æfa meistaraflokksbolta, með möguleika á einhverjum mínutum ef maður stendur sig, þá er valið að sjálfsögðu einfalt."


Sér hlutina í öðru ljósi núna
Þú spilar sex leiki með meistaraflokki FH sumarið 2018, varstu sáttur með þær mínútur sem þú fékkst og þína spilamennsku?

„Þegar ég horfi til baka þá er ég sáttur, þó að á sínum tíma hefði ég viljað spila meira. Þegar maður er ungur vill maður fá allar þær mínútur sem hægt er að fá og maður gerir allt til þess að fá þær. Núna átta ég mig betur á því að ákveðnar brekkur á ferlinum hjálpa þér að verða enn öflugri. Varðandi spilamennsku var ég heilt yfir sáttur með það sem ég náði að sýna."

Þú varst lánaður til Þróttar seinna um sumarið. Varstu ánægður að fara á lán frá FH?

„Ég var ekki að spila mikið á þeim tíma þegar ég fer á lán. Ég var sáttur við mína innkomu hjá Þrótti, þar sem ég lærði mikið, en hefði samt sem áður viljað standa mig ennþá betur þar."

Óvissan erfiðust
Segðu mér frá þeim meiðslum sem halda þér alveg frá boltanum árið 2019. Hvernig meiðsli voru þetta og hvenær meiðistu?

„Ég meiðist s.s. á mjöðm í æfingaleik í desember 2018 á móti Víkingi. Ég var á þeim tímapunkti nýkominn frá Ítalíu og fékk mikið högg á mjöðmina í leiknum sem urðu svo þrálátari en ands..."

Hvað lærðiru af bataferlinu og tók endurhæfingin jafnlangan tíma og áætlað var?

„Ég lærði mjög mikið á þessum meiðslum bæði innan og utan vallar. Það var í raun og veru enginn endurkomutími á mér og var það mjög óþægilegt og það erfiðasta við meiðslin að vita ekki hvenær þú verður góður. Sérstaklega þegar maður er svona ungur."

„Ef maður fótbrotnar eða slítur eitthvað þá er bataferlið nokkuð þekkt. Ég hélt á þessum tíma alltaf að það styttist í að ég yrði heill en þurfti svo að byrja aftur á byrjunarreit. Ég lærði mjög mikið af þessu og áttaði mig á því að fótboltinn er ekki endilega allt og nauðsynlegt að huga vel að öðrum þáttum."


Þú spilaðir átta leiki með 2. flokki framan af síðasta sumri en spilar ekkert undir lokin, hvað gerðist?

„Ég byrja að æfa í apríl á síðasta ári og er orðinn góður í mjöðm og byrjaði að mæta aftur, á þesum tíma var ég nánast hættur í fótbolta. Ég spila og er að æfa til þess að ná mér í leikform fyrir meistaraflokks leiki og fæ síðan beinmar á vinstri ökkla í ágúst, rétt áður en ég átti að æfa með meistaraflokknum aftur, eftir nítján mánaða fjarveru."

„Það var mjög mjög erfitt að meiðast aftur á þessum tíma þar sem maður var búinn að leggja mikið á sig að koma aftur og æfa með hópnum. Fyrri meiðsl hjálpuðu mér með það hvernig ég átti að vinna úr þessum og tækla þau með stæl."


Einbeitti sér að öðru og brosti í gegnum erfiðleikana
Það er tvennt í síðustu svörum þínum sem vekur sérstaka athygli hjá mér. Fyrst að þú varst nálægt því að hætta og svo að þú fórst að huga að öðrum þáttum en fótbolta. Segðu mér aðeins meira um þetta.

„Ég var mjög nálægt því að hætta þar sem ég sá ekki fram á það að geta spilað aftur fótbólta á háu stigi. Þetta var mjög erfitt fyrir mig, andlega sérstaklega, þar sem ég var mjög ungur og efnilegur að meiðast og hvað þá svona lengi, án þess í raun að vita hvað var að."

Fréttaritari fann sig knúinn að skjóta því inn að Egill var ekki einn um það að finnast hann efnilegur, nánar að því síðar.

„Mér finnst að ungir leikmenn sem meiðast hafi ekki neinn stað til að leita sér hjálpar á, upp á andlegu hliðina að gera. Það er eitthvað sem vantar og þyrfti að skoða. Eftir að ég meiddist tók við tímabil hjá mér sem tók mjög á."

„Það er mikilvægt að tala, tala við einhvern sem maður treystir og telur að geti hjálpað þér. Margir strákar á mínum aldri eiga erfitt með að tala um tilfinningar sínar. Ég átti sjálfur mjög erfitt með það til að byrja með en gat þó alltaf talað við mömmu mína, hana Telmu Lind."

„Það sem mér fannst skipta máli í mínum meiðslum er brosið. Vissulega var þetta alveg gífurlega svekkjandi fyrir mig og tók langan tíma en með því að mæta með bros á æfingar, í styrktarþjálfun og brosandi heim til fjölskyldurnar þá varð þetta einhvern veginn allt miklu auðveldara."

„Ég tel að ef þú brosir, talar um tilfinningar þína og ferð jákvæður inn í daginn þá kemstu í gegnum hvaða meiðsli sem er."

„Varðandi aðra þætti þá ákvað ég að byrja sinna skóla á fullu og skráði mig í Flensborg og ofan á það í fjarnám yfir sumarið, fór s.s. í sumarskóla. Með þessu fór ég líka að vinna til þess að dreifa huganum."


Þessi svör Egils minntu fréttaritara á svör Ævars Inga Jóhannessonar frá því fyrr í vetur. Viðtalið við Ævar má nálgast hér:

„Auðvelt að klífa fjallið þegar þú sérð toppinn en ef hann birtist aldrei ertu fljótur að þreytast" (17. nóv)

Fann strax að Davíð Smári getur hjálpað sér
Snúum okkur að Kórdrengjum, hvers vegna veluru að fara þangað?

„Ég er búinn að fylgjast vel með Kórdrengjum undafarin ár og það var það sem var mest spennandi fyrir mig á þessum tímapunkti. Ég vildi vinna undir mönnum sem eru með allt 100% og höfðu 100% trú á mér. Það er allt til alls hérna, við erum ungt félag með mikinn metnað - bæði stjórnin og þjálfarinn og það smitar frá sér til leikmanna. Einnig erum við komnir með toppaðstæður á Leiknisvelli, Domusnova vellinum, og síðan erum við að vinna með fagmönnum í Elite þjálfun."

Hvernig seldi Davíð Smári, þjálfari, þér þessa hugmynd?

„Þegar ég ræddi við Davið Smára þá var hugur minn strax hjá þeim (Kórdrengjum), þar sá ég strax metnað hans og vilja til þess að ná langt og ég fann það strax að þetta var þjálfari sem getur hjálpað mér í að verða betri leikmaður."

Spenntur fyrir því verkefni sem Kórdrengir eru í?

„Þetta er gríðarlega spennandi starf sem er í gangi hjá okkur í Kórdrengjum. Þetta er, eins og ég segi, auðvitað ungt félag en hér er allt til alls fyrir leikmenn. Fyrst og fremst snýst þetta þó um að leikmönnum sé látið líða vel hjá félaginu."

Finnst hann eiga margt ósannað hjá FH
Það kemur fram í tilkynningunni að mörg lið höfðu áhuga, var þetta erfið ákvörðun að fara frá FH?

„Það var mjög erfitt að fara úr FH, ég get nú alveg viðurkennt það ég hefði vilja ná allavega einum leik í sumar með þeim. Mér finnst ég eiga margt ósannað hjá FH. En eftir spjallið við Dabba var ég alveg seldur á þetta hjá Kórdrengjum."

Kom ekki til greina að halda áfram hjá FH?

„Það kom alveg til greina að halda áfram að vera í FH en mér fannst á þeim tímapunkti ég þurfa breyta um umhverfi til þess að virkja aftur keppnisskapið í mér og ná upp viljanum til þess að ná árangri. Ef einhver getur það þá er það Davið Smári."

Spilar þar sem Davíð segir honum að spila
Hver er þín uppáhalds stað á vellinum?

„Það er mjög erfitt að segja í dag hver mín staða er. Ég var að leysa bæði vinstri og hægri bakvörð en í dag er ég þar sem Davíð segir mér að vera. Í dag er það svolítið þannig að ég er sáttur ef ég er að spila. Mér finnst þó skemmtilegra að vera á kantinum á æfingum og í leikjum."

Valdi FH fram yfir Parma
Snúm okkur aðeins að öðrum hlutum, þú lékst á sínum tíma tólf unglingalandsleiki. Er markmiðið núna að komast í U21, eða ertu ekkert að spá í það?

„Ég spilaði minn fyrsta 90 mínútna meistaflokks leik núna fyrr í mánuðinum síðan 2018. Mín markmið eru því eingöngu þau að standa mig vel með Kórdrengjum."

Þú fórst á reynslu til Parma á sínum tíma, hvernig kom það til að þú fórst þangað og hvernig gekk sú ferð?

„Eftir að hafa fengið mínúturnar hjá FH og með Þrótti hafði Parma samband og ég ákvað að taka af skarið og prófa fara til Ítalíu. Dvölin þar var mjög góð, allt til alls og toppfélag."

Varstu nálægt því að semja?

„Ég fékk mjög gott samningsboð frá þeim en var eiginlega kominn á það að mig langaði að vinna mig inn í byrjunarlið FH og spila alvöru meistaraflokksleiki með þeim, jafnvel ná einhverjum mínútum í Evrópuleikjum. Hjá Parma hefði ég byrjað í unglingaliðinu."

Voru önnur lið sem þú fórst til eða buðu þér að koma?

„Það voru einhver önnur lið í spilunum en ég meiddist stuttu eftir að ég kom frá Ítalíu þannig ekkert var úr þeim pælingum."

Einbeitingin öll á tímabilið með Kórdrengjum
Ertu með einhverja atvinnumennsku drauma?

„Ég er í raun og veru ekki með neina drauma. Í dag er mitt markmið að spila vel með Kórdrengjum og ná árangri með þeim. Síðan þegar það er klárt þá fer ég að huga af öðru en núna er ég leikmaður Kórdrengja og einbeitingin 100% á því."

Var á hækjum en er ekki brotinn
Ljúkum þessu á stöðu þinni í dag, það sást til þín á hækjum eftir leikinn gegn FH í Lengjubikarnum. Hvernig er staðan á þér í dag?

„Staðan er góð og það gengur vel hjá mér. Ég fékk högg á ökklann í leiknum, fór í myndatöku og það kom í ljós að ég er ekki brotinn," sagði Egill að lokum. Athygli er vakin á því að þeir sem vilja kynnast Agli enn betur geta lesið sér til um hann í 'hinni hliðinni' á morgun.
Athugasemdir
banner
banner