Middlesbrough tekur toppsætið í bili eftir öflugan sigur á Sheffield Wednesday á útivelli. Muhamed Besic kom gestunum yfir í upphafi síðari hálfleiks og stuttu síðar tvöfaldaði Britt Assombalonga forystuna fyrir gestina.
Adam Reach minnkaði muninn fyrir heimamenn en það dugði ekki til og strákarnir í Middlesbrough tóku öllu þrjú stigin. Þeir eru eftir leik dagsins á toppi deildarinnar með 25 stig, jafnmörg og Sheffield United sem á leik til góða á morgun.
Sheffield Wed 1 - 2 Middlesbrough
0-1 Muhamed Besic ('49 )
0-2 Britt Assombalonga ('55 )
1-2 Adam Reach ('82 )
Athugasemdir