Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. október 2018 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Icardi ánægður hjá Inter - Vill framlengja
Mauro Icardi er vinsæll í Mílanó
Mauro Icardi er vinsæll í Mílanó
Mynd: Getty Images
Mauro Icardi, framherji Inter á Ítalíu, er við það að framlengja samning sinn við félagið en það eru risafréttir fyrir Inter.

Icardi, sem er 25 ára gamall, er uppalinn hjá Barcelona, en hann fór ungur til Sampdoria þar sem hann gerði vel hjá unglingaliðinu áður en Inter kom auga á hann.

Hann hefur verið helsti markaskorari Inter síðustu ár en hann hefur skorað yfir 20 mörk á þremur af síðustu fjórum tímabilum.

Icardi hefur verið orðaður við mörg stórlið undanfarið en svo virðist sem hann verður áfram hjá Inter.

„Ég er ánægður með að vera áfram hér. Það hafa komið einhverjar fyrirspurnir en ég hef ákveðið að vera ásamt fjölskyldu minni í Mílanó," sagði Icardi við Sky Italia.
Athugasemdir
banner
banner
banner