fös 19. október 2018 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland um helgina - Heldur Alfreð áfram að skora?
Alfreð Finnbogason er kominn með fjögur mörk í tveimur leikjum
Alfreð Finnbogason er kominn með fjögur mörk í tveimur leikjum
Mynd: Getty Images
Það verður líf og fjör í þýsku deildinni um helgina en Alfreð Finnbogason verður væntanlega í liði Augsburg sem spilar gegn RB Leipzig.

Einn leikur er á dagskrá í kvöld en Eintracht Frankfurt mætir Fortuna Dusseldorf klukkan 18:30. Á morgun fara svo fram sex leikir.

Stærsti leikurinn klukkan 13:30 er leikur Augsburg og RB Leipzig en Alfreð Finnbogason verður væntanlega í eldlínunni. Hann er kominn með fjögur mörk í tveimur leikjum en það er gaman að segja frá því að Yvon Mvogo, landsliðsmarkvörður Sviss, mun verma tréverkið hjá Leipzig.

Alfreð skoraði stórbrotið mark gegn Mvogo á Laugardalsvelli í 2-1 tapinu gegn Sviss á dögunum.

Stuttgart og Dortmund mætast þá í hörkuleik og þá heimsækja Þýskalandsmeistarar Bayern München lið Wolfsburg.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
18:30 Eintracht Frankfurt - Fortuna Dusseldorf

Laugardagur:
13:30 Nurnberg - Hoffenheim
13:30 Bayer Leverkusen - Hannover
13:30 Augsburg - RB Leipzig
13:30 Stuttgart - Dortmund
13:30 Wolfsburg - Bayern München
16:30 Schalke - Werder Bremen

Sunnudagur:
13:30 Hertha Berlín - Freiburg
16:00 Borussia Monchengladbach - Mainz
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 26 22 4 0 66 18 +48 70
2 Bayern 26 19 3 4 78 31 +47 60
3 Stuttgart 26 18 2 6 60 31 +29 56
4 Dortmund 26 14 8 4 53 32 +21 50
5 RB Leipzig 26 15 4 7 60 32 +28 49
6 Eintracht Frankfurt 26 10 10 6 42 35 +7 40
7 Augsburg 26 9 8 9 43 42 +1 35
8 Hoffenheim 26 9 6 11 44 50 -6 33
9 Freiburg 26 9 6 11 36 48 -12 33
10 Werder 26 8 6 12 35 41 -6 30
11 Heidenheim 26 7 8 11 35 44 -9 29
12 Gladbach 26 6 10 10 46 50 -4 28
13 Union Berlin 26 8 4 14 25 42 -17 28
14 Wolfsburg 26 6 7 13 31 44 -13 25
15 Bochum 26 5 10 11 30 54 -24 25
16 Mainz 26 3 10 13 22 46 -24 19
17 Köln 26 3 9 14 20 47 -27 18
18 Darmstadt 26 2 7 17 26 65 -39 13
Athugasemdir
banner
banner