Usain Bolt á góða möguleika á því að semja við Central Coast Mariners samkvæmt Mark Schwarzer, fyrrum landsliðsmarkverði Ástralíu.
Forráðamenn liðsins eiga enn eftir að taka ákvörðun um framtíð Bolt en úrvalsdeildin í Ástralíu hefst um helgina. Schwarzer segir sjálfur að möguleikar Bolt séu nokkuð góðir.
„Ég tel hann eiga góða mökuleika, aðallega vegna þess að hann hefur verið hér svo lengi. Þeir telja hann hafa eitthvað og þess vegna fengu þeir hann til liðsins. Á hans aldri og stað í lífinu er spurning hvort hann geti bætt sig nóg til þess að tryggja sér samning á í A-deildinni, ” sagði Schwarzer.
Miklar umræður hafa átt sér stað um hvort að félagið sé eingöngu að horfa til treyjusölu og aukins áhorfs á deildinni en Schwarzer telur að félagið verði að taka ákvörðun um framtíð leikmannsins út frá getu hans á knattspyrnuvellinum.
Athugasemdir