Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 20. október 2018 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið sem Sverrir skoraði fyrir Rostov í gær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason var á skotskónum í gær þegar Íslendingalið Rostov tapaði gegn Lokomotiv Moskvu.

Sjá einnig:
Rússland: CSKA Moskva með sigur - Sverrir skoraði í tapi

Sverrir jafnaði metin fyrir Rostov í 1-1 á 27. mínútu en Lokomotiv tryggði sér sigurinn með marki eftir klukkutíma leik.

Sverrir spilaði í vörn Rostov ásamt félaga sínum í landsliðinu, Ragnari Sigurðssyni. Björn Bergmann Sigurðarson lék líka fyrir Rostov í leiknum en Viðar Örn Kjartansson var allan tímann á varamannabekknum.

Viðar tilkynnti það óvænt í morgun að hann væri hættur í íslenska landsliðinu.

Rostov er í fjórða sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar með 18 stig eftir 11 leiki. Lokomotiv er í sjötta sæti með jafnmörg stig.

Hér að neðan er markið sem Sverrir skoraði í gær.



Athugasemdir
banner
banner
banner